Fara í efni

Ferðaþjónustan á dagskrá í viðburðaríkri viku hjá Markaðsstofu Vestfjarða

Fréttir Markaðsstofa Vestfjarða
Frá fundinum Mótvindur í Borgarnesi
Frá fundinum Mótvindur í Borgarnesi

Síðustu dagar hafa verið viðburðaríkir hjá Markaðsstofu Vestfjarða þar sem málefni ferðaþjónustunnar hafa verið til umræðu á fjölbreyttum vettvangi. Markaðsstofan tók þátt í fundi um framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi, fundaði með atvinnuvegaráðherra og kynnti helstu verkefni sín á 71. Fjórðungsþingi Vestfirðinga.

Mótvindur og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi

Fimmtudaginn 22. október stóðu Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða fyrir fundinum Mótvindur í Borgarnesi. Á fundinum var fjallað um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi, áhrif skatta og gjalda á greinina og mikilvægi ferðaþjónustu fyrir atvinnulíf og byggðaþróun.
Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða, flutti erindi um mikilvægi skemmtiferðaskipa fyrir atvinnulíf á landsbyggðinni. Þar var meðal annars fjallað um hvernig tekjur af komum skemmtiferðaskipa skapa verðmæti fyrir fjölbreytta starfsemi á Vestfjörðum. Jafnframt var lögð áhersla á mikilvægi fyrirsjáanlegs rekstrarumhverfis svo fyrirtæki og sveitarfélög geti skipulagt starfsemi sína til lengri tíma.

Að loknum framsöguerindum fóru fram umræður með þingmönnum Norðvesturkjördæmis um þau mál sem helst brenna á ferðaþjónustunni.
Hægt er að horfa á upptöku fundarins hér.

Fundur með atvinnuvegaráðherra

Mánudaginn 26. október tók Markaðsstofa Vestfjarða á móti Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, til að ræða stöðu ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum og þau tækifæri sem fram undan eru.
Á fundinum var farið yfir helstu verkefni Markaðsstofunnar, þróun ferðaþjónustu á svæðinu og mikilvægi áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld um uppbyggingu greinarinnar.

Sérstaklega var rætt um verkefni Markaðsstofunnar á sviði vetrarferðaþjónustu, sem vakti áhuga ráðherra. Verkefnið miðar að því að fjölga ferðamönnum utan háannatíma, jafna árstíðasveiflur og skapa grundvöll fyrir aukna heilsársstarfsemi ferðaþjónustufyrirtækja.

Áfangastaðaáætlun og ímynd Vestfjarða á Fjórðungsþingi

Þriðjudaginn 27. október kynnti Markaðsstofa Vestfjarða nokkur af helstu verkefnum sínum á 71. Fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var á Patreksfirði.
Þar var meðal annars farið yfir vinnu við uppfærslu Áfangastaðaáætlunar Vestfjarða, sem er sameiginleg stefnumótun fyrir þróun ferðaþjónustunnar á svæðinu.
Við gerð áætlunarinnar er leitað sjónarmiða íbúa, sveitarfélaga, ferðaþjónustufyrirtækja og annarra hagaðila. Jafnframt er byggt á fyrirliggjandi stefnum og skipulagsáætlunum, ekki síst Svæðisskipulagi Vestfjarða. Markmiðið er að móta sameiginlega sýn á framtíð ferðaþjónustunnar og forgangsraða þeim verkefnum sem styðja við sjálfbæra uppbyggingu hennar.

Markaðsstofan fjallaði einnig um mikilvægi jákvæðrar og sterkrar ímyndar Vestfjarða. Mikil vinna er lögð í að kynna svæðið sem áhugaverðan áfangastað og draga fram þá fjölmörgu kosti sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða.
Í því samhengi voru sveitarfélögin hvött til að taka virkan þátt í að tala svæðið upp. Þótt enn séu áskoranir í samgöngum og innviðum hafa orðið miklar framfarir á undanförnum árum og aðgengi að Vestfjörðum hefur tekið verulegum breytingum til batnaðar.

Sterk ímynd Vestfjarða snýst ekki eingöngu um að laða að ferðamenn. Hún hefur einnig áhrif á möguleika svæðisins til að laða að nýja íbúa, sérfræðinga, fyrirtæki og fjárfestingu.

Markaðsstofan lagði því áherslu á að sveitarfélög, atvinnulíf og aðrir hagaðilar standi saman að því að draga fram styrkleika Vestfjarða og miðla jákvæðri og raunsannri mynd af svæðinu.