04. maí 2026
Störf í boði
Félagsþjónusta Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsmanni á Ból, sem er heimili fatlaðs og langveiks ungs manns. Óskað er eftir starfsmanni í hlutastarf eða fullt starf. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum.
- Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg.
- Menntun sem nýtist í starfinu er kostur.
- Viðkomandi þurfa að vera 20 ára og eldri.
- Óskað er eftir einstaklingum sem eru ábyrgir og góðir í mannlegum samskiptum.
Á Bóli vinnur öflugur starfsmannahópur á sólahringsvöktum. Nýir starfsmenn fá góða þjálfun og bakvakt er til staðar. Vinnuaðstaða á Bóli er eins og best er á kosið.
Umsóknir eða fyrirspurnir sendist á:
Guðný Hildi Magnúsdóttur gudnyhildur@bolungarvik.is eða á Kristin Gauta Einarsson kristinn@bolungarvik.is