Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar 100% starf félagsráðgjafa í barnavernd. Leitað er að kröftugum einstaklingi sem býr yfir miklum skipulagshæfileikum og ríkri þjónustulund sem sýnir frumkvæði og metnað í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í hópi, ásamt því að vera sjálfstæður í verkefnum þegar þörf krefur. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Næsti yfirmaður er deildarstjóri í barnavernd.
Ísafjarðarbær er leiðandi sveitarfélag í málefnum fatlaðra og barnaverndarþjónustu. Aðildarsveitarfélögin eru öll sveitarfélög á Vestfjörðum sem starfa saman á grundvelli samnings um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum. Auk þess vinnur barnavernd hjá Ísafjarðarbæ öll 3. stigs mál fyrir Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp skv. samningi. Þannig kemur ráðgjafi mikið að samstarfi við aðildarsveitarfélögin á Vestfjörðum.
Velferðarsvið býður meðal annars upp á:
- Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki
- Góðan starfsanda
- Sveigjanlegan vinnutíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur á móti barnaverndartilkynningum, skráir þær og leggur fram á barnaverndarteymisfundi Velferðarþjónustu Vestfjarða
- Vinnsla barnaverndarmála, samskipti og samvinna við börn og foreldra
- Skráir samskipti við skjólstæðinga og aðra sem koma að einstaklingsmálum í OneSystems
- Málstjórn á grundvelli laga um samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna
- Situr vikulega teymisfundi barnaverndarteymis Velferðarþjónustu Vestfjarða og aðra fundi samkvæmt samkomulagi við deildarstjóra í barnavernd
- Samskipti við aðrar stofnanir við vinnslu barnaverndarmála
- Tekur þátt í sískráningu undir stjórn deildarstjóra
- Tekur þátt í vinnu við gerð ársskýrslu á sviði barnaverndar undir stjórn deildarstjóra
- Virk þátttaka í stefnumótun, mótun verkferla, starfsáætlana og endurskoðunar á reglum í málaflokknum
- Situr starfsmannafundi og samráðsfundi
Menntun og hæfniskröfur
- Starfsréttindi félagsráðgjafa
- Starfsreynsla og þekking á sviðinu
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð yfirsýn, vandvirkni og skipulagshæfni
- Góð tölvukunnátta
- Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma)
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2026. Umsóknum skal skilað til Dagnýjar Sifjar L. Snæbjarnardóttur, deildarstjóra í barnavernd á dagnysn@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt afriti af prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.