Fara í efni

Endurskoðun byggðaáætlunar - fjarfundur

Fréttir

Vestfjarðastofa boðar til fundar ásamt innviðaráðuneyti og Byggðastofnun. Á fundinum verða kynnt fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun með sérstaka áherslu á drög að aðgerðaáætlun hennar. Fulltrúar ráðuneytisins og Byggðastofnunar munu kynna fyrirliggjandi drög og hvetja til skoðanaskipta um þau. Umræður og ábendingar sem fram koma á fundinum verða nýttar við áframhaldandi vinnu og munu meðal annars verða lögð til grundvallar efni í hvítbók sem sett verður í samráðsgátt stjórnvalda í lok maí. 

Hægt er einnig að taka þátt í samráði um drögin á vef  Byggðastofnunar og eru fundagestir hvattir til að kynna sér efnið vel fyrir fundinn. 

Fundurinn verður haldinn á Teams þann 20. apríl kl. 13:00 - 14:30 og er öllum opinn. 

Nauðsynlegt er þó að skrá sig til að fá sendan hlekk á fundinn. Skráning er hér.