Fara í efni

Eimskip - Svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum

Störf í boði

Eimskip leitar að metnaðarfullum og öflugum svæðisstjóra til starfa á Vestfjörðum.

Hjá Eimskip á Vestfjörðum starfar samhentur hópur sem sinnir fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum á sviði innanlandsflutninga, auk þjónustu tengdri inn- og útflutningi fyrir viðskiptavini á svæðinu.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem svæðisstjóri leiðir daglegan rekstur tveggja starfsstöðva, á Ísafirði og Patreksfirði, en starfsstöð svæðisstjóra er á Ísafirði.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri
  • Þjónusta við viðskiptavini
  • Umsjón með starfsmannamálum
  • Áætlanagerð og markmiðasetning
  • Stuðningur við áframhaldandi þróun og vöxt starfseminnar
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða víðtæk starfsreynsla
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Reynsla af sölu og samningagerð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í störfum
 
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift og nettenging heima
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Öflugt starfsmannafélag og aðgangur að orlofshúsum víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur m.a. samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
 

Sækja um starf