Fara í efni

Eimskip - Meiraprófsbílstjóri á Patreksfirði

Störf í boði

Eimskip á Patreksfirði leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum meiraprófsbílstjóra með aukin ökuréttindi til að sinna vörudreifingu á sunnanverðum Vestfjörðum.

Starfið felur í sér akstur flutningabíla, lestun og losun, sem og samskipti við viðskiptavini.

Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað til að skila góðum árangri, vinnur vel í teymi og sýnir virðingu í samskiptum – í takt við gildi Eimskips: Liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing.

Starfið tilheyrir Innanlandssviði Eimskips, en á sviðinu starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur flutningabíla
  • Lestun og losun
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi verkefni
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf CE er skilyrði
  • Lyftararéttindi eru kostur
  • ADR réttindi eru kostur
  • Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæð vinnubrögð
 
Fríðindi í starfi
  • Aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
 

Sækja um starf