Skóla- og tómstundasvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra þjónustu fyrir félagsmiðstöðvar bæjarins. Deildarstjóri hefur það hlutverk að efla og þróa starf félagsmiðstöðva sveitarfélagsins með það að markmiði að auka gæði þjónustunnar og tryggja fjölbreytt tómstundaframboð sem höfðar til breiðs hóps barna og ungmenna. Viðkomandi vinnur jafnframt að forvarnarmálum og verkefnum er stuðla að því að börnum, unglingum og öðrum gestum líði vel og finni til öryggis í félags- og tómstundastarfi. Næsti yfirmaður deildarstjóra er íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
Um er að ræða 100% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 4. janúar 2027 eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með félagsmiðstöðum sveitarfélagsins í öllum byggðarkjörnum
- Ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd verkefna á sviði félags- og tómstundastarfs samkvæmt áherslum og leiðbeiningum yfirmanns
- Skipuleggur viðburði, námskeið, ferðir og sérstök verkefni á vegum félagsmiðstöðva
- Er nánasti samstarfsaðili unglingaráða og annarra notendahópa félagsmiðstöðvanna og styður þau við skipulagningu og framkvæmd verkefna og viðburða
- Tekur þátt í ráðningum og þjálfun nýrra starfsmanna
- Skipuleggur samskipti og samstarf við skóla, félagasamtök, foreldra og aðra samstarfsaðila eftir því sem við á
- Stuðlar að jákvæðum samskiptum og er góð fyrirmynd fyrir börn og ungmenni sem taka þátt í starfseminni
- Hefur umsjón með innkaupum aðfanga í samræmi við innkaupareglur Ísafjarðarbæjar
- Tekur þátt í þróun og mati á starfi félagsmiðstöðvanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði uppeldis- og/eða tómstundafræða eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla af félags-, tómstunda- eða æskulýðsstarfi er æskileg
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð færni í íslensku, bæði í ræðu og riti, er skilyrði
- Góð tölvukunnátta
- Þekking í skyndihjálp æskileg
- Almenn ökuréttindi
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2026. Umsóknum skal skilað til Dagnýjar Finnbjörnsdóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Ísafjarðarbæjar, í netfangið dagnyf@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný, í síma: 450-8000 eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
-Við þjónum með gleði til gagns-