Laust er til umsóknar starf karlkyns stuðningsfulltrúa í dægradvöl á Ísafirði. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst en starfið er tímabundið til 4. júní 2027 með möguleika á framhaldsráðningu næsta skólaár. Vinnutíminn er frá 13:00 til 16:00 (42% starfshlutfall) alla virka daga. Næsti yfirmaður er forstöðumaður dægradvalar. Leitað er eftir kröftugum og líflegum einstaklingi í starfið.
Helstu verkefni:
- Þátttaka í uppeldisstarfi þar sem megináhersla er lögð á velferð og vellíðan barns/barna
- Sértækur stuðningur við nemanda/nemendur með sérþarfir
- Þátttaka í dagskipulagi dægradvalar og frístundar
- Samstarf við foreldra og fagfólk í samræmi við áætlun hvers einstaklings
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Starfsreynsla á frístundasviði kostur
- Gott líkamlegt ástand og hreysti
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Reglusemi
- Vera orðinn 18 ára
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026. Umsóknum skal skilað til Evu Maríu Einarsdóttur, forstöðumanns dægradvalar, í netfangið evaei@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva í síma: 450-8059 / 867-7757 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-