Fara í efni

Úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða

Fréttir Uppbyggingasjóður Vestfjarða Áfram Árneshreppur! Sóknaráætlun Vestfjarða Öll vötn til Dýrafjarðar Sterkar Strandir

Úthlutað hefur verið úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða vegna verkefna sem koma til framkvæmda á árinu 2023.

Til úthlutunar voru alls 55.150.000 kr. en af þeim hafði þegar verið ráðstafað 11.850.000 kr. til verkefna sem náðu til meira en eins árs. Til ráðstöfunar í þessari úthlutun voru því 43.300.000 kr.

Alls barst 103 umsóknir og fengu 62 þeirra styrkvilyrði. Árangurshlutfall var þannig 60% sé miðað við fjölda umsókna. Heildarupphæð sem sótt var um var upp á 188.365.030 kr. og er árangurshlutfall 23% sé miðað við heildarupphæð styrkumsókna. Heildarupphæð þeirra verkefna sem hlutu styrkvilyrði var sótt um alls 108.410.880 kr. og er árangurhlutfall þeirra umsókna 40% sé miðað við krónutölu. Heildarkostnaður við þau verkefni sem hlutu styrkvilyrði er 307.633.318 kr.

Niðurstöður styrkúthlutunar Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða vegna ársins 2023 má sjá hér.

Haldið var ofurlítið rafrænt úthlutunarhóf fyrir styrkþega þar sem tilkynnt var hverjir hlytu styrkvilyrði til verkefna ársins 2023. Nokkrir styrkþegar, gamlir og nýjir sendu inn stutt myndbönd þar sem þeir sögðu frá verkefnum sínum. Myndböndin má sjá hér að neðan;

  • Baskasetur Íslands - hér
  • Galdur Brugghús - hér,
  • Cycling Westfjords - hér
  • Tungumálatöfrar - hér.

Að auki var tónlistaratriði, smá forsmekkur að hátíðinni International Westfjords Piano Festival á Patreksfirði 2023. Andrew J. Yang og Myung Hwang Park léku fjórhent píanódúettinn Tatra Album op.12 III. Allegro con moto. Það myndband má sjá hér.