Fara í efni

Breskir Fish & Chips verðlaunahafar upplifðu Vestfirði

Fréttir

Í byrjun júní bauð Íslandsstofa vinningshöfum úr National Fish & Chip Awards 2026, ásamt hagaðilum og fjölmiðlum í kynnisferð til Íslands. Hópurinn dvaldi að mestu á Vestfjörðum þar sem þau upplifðu einstaka náttúru, fallegt veður og hlýjar móttökur heimamanna. Markaðsstofa Vestfjarða var þeim innan handar við skipulagningu á dvölinni fyrir vestan. 

Í ferðinni heimsótti hópurinn fyrirtæki í sjávarútvegi, þar á meðal á Ísafirði og í Grindavík, og fékk innsýn í mikilvægi greinarinnar fyrir byggðir landsins. Komið var við hjá nýsköpunarfyrirtækjum á borð við Kerecis og Nordic Fish Leather þar sem nýting hráefnisins var kynnt. Gestirnir tóku þátt í sjómannadagshelgi á Patreksfirði þar sem Guðrún Anna starfsmaður Vestfjarðastofu tók á móti hópnum og leiddi meðal annars sögugöngu um bæinn og kappróður, einnig sigldu þau með Núpi BA og nutu hátíðarstemningarinnar með heimamönnum. Kvöldið endaði með grillveislu og líflegu sjómannadagsballi.

Hér má sjá hópinn sem tók þátt í Róðrakeppninni ásamt Guðrúnu Önnu sem stýrði róðraliðinu til sigurs.

Hópnum gafst einnig tækifæri til að heimsækja nokkrar af helstu náttúruperlum Vestfjarða, þar á meðal Dynjanda, Látrabjarg og Bolafjall.

 Andrew Crook, forseti bresku samtakanna National Federation of Fish Friers, var með hópnum og lét vel af ferðinni. Að hans sögn upplifðu gestirnir ógleymanlega daga á Vestfjörðum og þótti þeim sérstaklega fróðlegt að sjá hvernig Íslendingar nýta hráefni úr sjónum, ekki aðeins til matvælaframleiðslu heldur einnig í lækningar og aðra verðmætasköpun. Hann benti jafnframt á að alls staðar hefði hópnum verið tekið af mikilli hlýju og gestrisni og að ljóst væri að Íslendingar beri virðingu fyrir fiskistofnunum og mikilvægi þeirra. Það hafi þó staðið upp úr hversu stórt hlutverk fiskurinn gegni í daglegu lífi.

Markaðsstofa Vestfjarða er ánægð með samstarfið við Íslandsstofu við skipulagningu ferðarinnar og þær jákvæðu viðtökur sem svæðið fékk hjá gestunum. Kynnisferðir sem þessar eru afar mikilvægar fyrir markaðssetningu Vestfjarða, þar sem þær skapa dýrmætt tækifæri til að kynna svæðið, menningu þess og afurðir á alþjóðlegum vettvangi