Fara í efni

Bolungarvíkurkaupstaður - Sumarstarf í áhaldahúsi

Störf í boði

Tæknideild Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsmanni í áhaldahúsi við afleysingar vegna sumarleyfa starfsmanna í áhaldahúsi.
Ráðningartímabil: 18.05.2026-28.08.2026

Helstu verkefni:

  • Afleysing núverandi starfsmanna
  • Vinnuskóli
  • Ýmis tilfallandi verkefni á vegum áhaldahúss
    • Vatnsveitumál
    • Fráveitumál
    • Þjónusta við stofnanir
    • Almenn umhirða bæjarlandssins
    • Hellulögn
    • Sláttur
    • Tiltekt
    • Aðstoð og afleysingar við ferðamannastaði eins og Ósvör og Bolafjall
    • Aðstoð við viðburði

Hæfniskröfur

  • Starfsmenn þurfa að vera 25 ára og eldri.
  • Reynsla af verkstjórn og verkframkvæmdum er nauðsynleg.
  • Bílpróf skilyrði.
  • Vinnuvélapróf kostur.
  • Iðnmenntun kostur.
  • Krafist er stundvísi og jákvæðni.

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun samkvæmt samningi Bolungarvíkurkaupstaðar og viðkomandi stéttafélags.
Starfshlutfall 100%
Nánari upplýsingar um starfið gefur Finnbogi Bjarnason sími 450-7000 eða í netfangi finnbogi@bolungarvik.is

Umsóknum skal skilað inn til Finnboga Bjarnasonar á netfangið finnbogi@bolungarvik.is