Fara í efni

Blábankinn - Bankastjóri Blábankans

Störf í boði

Viltu leiða suðupott sköpunar í sjávarþorpi á Vestfjörðum?

Blábankinn er ekki fjárhagslegur banki heldur miðstöð sköpunar á Vestfjörðum. Fólk leggur inn hugmyndir í Blábankann og ávaxtar þær – fyrir sjálft sig, samfélagið og heiminn.

  • Áttu auðvelt með uppbyggjandi samskipti á íslensku og ensku og hefur áhuga á að tengja saman fólk og efla samstarf ólíkra hagaðila?

  • Kanntu að miðla sögum um fólk sem skapar, frumkvæði, menningu og sjálfbæra lifnaðarhætti?

  • Sýnir þú frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleika í starfi ?

  • Viltu vinna og búa í fallegu þorpi í vexti, í nálægð við einstaka náttúru?

Bankastjóri Blábankans

Bankastjóri er forstöðumaður Blábankans á Þingeyri og ber ábyrgð á daglegum rekstri, þróun verkefna og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði nýsköpunar, menningar og samfélagsþróunar og er unnið í nánu samstarfi við stjórn Blábankans, Vestfjarðastofu, íbúa, frumkvöðla, listafólk og samstarfsaðila innanlands og erlendis.

Um er að ræða fullt starf með starfsstöð á Þingeyri. Möguleiki á að hluti starfs sé unninn í fjarvinnu.

Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað til að byggja áfram á því öfluga starfi sem unnið hefur verið undanfarin ár og þróa starfsemina áfram í takt við framtíðarsýn Blábankans.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun nýsköpunar- og menningarverkefna.

  • Gerð umsókna í innlenda og alþjóðlega styrktarsjóði og eftirfylgni verkefna.

  • Að efla samstarf og tengslanet Blábankans innanlands og erlendis.

  • Umsjón með samvinnurými (co-working space) og þjónustu við notendur þess.

  • Umsjón með húsnæði eftir þörfum.

  • Þjónusta við frumkvöðla, listafólk, íbúa og gesti.

  • Umsjón með viðburðum og samfélagsverkefnum.

  • Samskipti við verktaka og verkstjórn eftir þörfum.

 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkefnastjórnun, æskilega fjölþjóðlegra verkefna.

  • Færni til að skapa og rækta tengsl við ólíka einstaklinga og stofnanir.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.

  • Sveigjanleiki, framkvæmdagleði og skipulögð, sjálfstæð vinnubrögð.

  • Þjónustulund og lausnamiðuð hugsun.

  • Áhugi á nýsköpun, menningu og samfélag uppbyggingu.

 

Sækja um starf