Fara í efni

Ársfundadagur

Fréttir

Miðvikudaginn 15. apríl verður "ársfundadagur" hjá okkur á Vestfjarðastofu og Fjórðungssambandi Vestfirðinga en þann dag verður haldið auka Fjórðungsþing Vestfirðinga, Ársfundur fulltrúaráðs Vestfjarðastofu og vinnustofa um stefnu Vestfjarðastofu 2027-2036.

Allir þættir dagskrár verða bæði í staðfund á Vestfjarðastofu að Suðurgötu 12 Ísafirði og í fjarfundi á Teams. Vinsamlega athugið að skráning er mikilvæg á báða viðburði og eru skráningartenglar eru hér fyrir neðan.  Skráðir þátttakendur á fjarfundi fá tengil samdægurs. 

11:00-12:00  Auka Fjórðungsþing Vestfirðinga.

Dagskrá þingsins er eftirfarandi: 

1. Skýrsla stjórnar og rekstrareininga, sem FV ber ábyrgð á.
2. Afgreiðsla ársreikninga og skýrslu endurskoðenda FV og rekstrareininga sem FV ber fjárhagslega ábyrgð á.
3. Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050. Staða og úrvinnsla umsagna við kynningartillögu (febrúar 2026)

Fulltrúar á Fjórðungsþingi eru aðalmenn í sveitarstjórn eða varamenn þeirra. Þingið er þó öllum opið en atkvæðisrétt hafa aðeins kjörnir fulltrúar.  Skráning á Fjórðungsþing hér.

12:00 - 13:00 Hádegishlé

13:00 - 14:00 Ársfundur fulltrúaráðs Vestfjarðastofu

Vestfjarðastofa er sjálfseignastofnun og er fulltrúaráð skipað fulltrúum þeirra sem eiga aðild að stofnuninni.  Sjá má lista yfir stofn- og hagaðila hér.  

Skráning á ársfund Vestfjarðastofu og vinnustofu í kjölfarið er hér

Dagskrá ársfundar er eftirfarandi: 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Staðfesting ársreiknings 
  3. Fjárhags- og starfsáætlun kynnt
  4. Breytingar á samþykktum (á ekki við á þessum fundi)
  5. Staðfesting á innri reglum Vestfjarðastofu (á ekki við á þessum fundi)
  6. Kosningar:
    1. Staðfesting á kjöri stjórnarmanna atvinnulífs -og menningar (á ekki við á þessum fundi)
    2. Kjör nefnda og fagráða (á ekki við á þessum fundi)
    3. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis
    4. Kjör starfsháttanefndar (á ekki við á þessum fundi)
  7. Ákvörðun um þóknun stjórnar, nefnda og fagráða.
  8. Önnur mál 

14:00-15:00 Vinnustofa - upphaf stefnumótunar Vestfjarðastofu 2027-2036

Vinnustofan er öllum opin og þar sem Vestfjarðastofa annast rekstur Fjórðungssambands Vestfirðinga eru sveitarstjórnarmenn hvattir til að mæta á vinnustofuna sem verður stutt og snörp.