Fara í efni

Arnarlax Bíldudal - Starf í viðhaldsdeild

Störf í boði

Arnarlax leitar eftir líflegum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt starf vélstjóra/viðhaldsmanns í viðhaldsdeild í laxavinnslu fyrirtækisins á Bíldudal.

Starfið felur í sér umsjón, almennt viðhald og eftirlit með vélbúnaði ásamt öðrum verkefnum í samráði við yfirvélstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sjá um viðhald og eftirlit með vélbúnaði í laxavinnslu fyrirtækisins

  • Annast almenna tæknivinnu og tryggja örugga og skilvirka notkun búnaðar

  • Umsjón með vinnslubúnaði

  • Taka þátt í hönnun, uppsetningu og framkvæmdum tengdum nýjum búnaði og endurbótum

  • Þátttaka í lagerstjórnun, þar á meðal utanumhald varahluta og tækja

  • Breytilegur vinnutími

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðhaldi vélbúnaðar eða viðeigandi iðnmenntun

  • Þekking á TIG-suðu er kostur

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni og samstarfsvilji

  • Snyrtimennska í starfi

  • Rík ábyrgðarkennd og áreiðanleiki

  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi

Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Arnarlax teymið samanstendur nú af um 170 manns, hæfu fólki á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af öllum kynjum og ýmsum þjóðernum sem vinna saman að framleiðslu fyrsta flokks lax til viðskiptavina um allan heim. Við erum með starfsemi í fjórum mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar í Vesturbyggð og Kópavogi og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Grímsnesi- og Grafningshreppi. 

Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki. 

Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni. 

Uppfyllir þú ofangreind skilyrði og hefur áhuga á að ganga til liðs við kraftmikið teymi okkar, vinsamlegast sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. 

Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2026.  

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri vinnslu, Rúnar Ingi Pétursson með tölvupóst: runaringi@arnarlax.is 

Sækja um starf