22. apríl 2026
Störf í boði
Arctic Fish óskar eftir að ràða fleiri starfsmenn í sjóeldisdeild fyrirtækisins í Patreksfirði, Tálknafirði, Arnarfirði, Dýrafirði og Ísafjarðardjúpi.
Aðalverkefni og ábyrgð:
- Dagleg starfsemi á sjókvíum
- Fóður og vöktun á fiski
- Eftirlit og viðhald á tæknilegum búnaði og aðstöðu
- Gerð framleiðslu- og heilsufars skýrslna
Við leitum að einstaklingum með eftirfarandi hæfni:
- Skip- og vélstjórnarréttindi
- Reynsla í fiskeldi er kostur
- Ökuréttindi er kostur
- Frumkvæði og metnaður í vinnu
- Árvekni og áreiðanleiki
- Hæfni til að vinna í teymi
- Áhugi á fiskeldi
Það sem við bjóðum:
- Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein
- Stuðningur til náms og tækifæri til að þróast
- Styrkir til íþróttaiðkunar
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Umsóknum skal skila rafrænt til Pia Czorny á netfangið pia@afish.is og skulu þær innihalda ferilskrá (CV) og stutt kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 10. Maí 2026.