Fara í efni

Ný stjórn kosin á 71. Fjórðungsþingi á kosningaári

Fréttir Fjórðungssamband Vestfirðinga
71. Fjórðungsþing á kosningaári til sveitastjórna var haldið 24. júní sl. í fjarfundi. Dagskrá þingsins var eftir samþykktum fyrir utan tvo liði, skýrslu stjórnar og rekstrareininga og afgreiðsla ársreikninga sem afgreidd voru á aukaþingi í vor, 15 apríl sl.
 
Margir nýir sveitastjórnarmenn sátu þingið en þingið var að meginhluta um að kjósa af afloknum sveitastjórnarkosningum, nýja stjórn Fjórðungssambandsins til næstu tveggja ára og skipa í fastanefndir þess.
 
Í stjórn Fjórðungssamband Vestfirðinga voru kosin til tveggja ára;
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Strandabyggð
Gylfi Ólafsson, Ísafjarðarbæ
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir, Vesturbyggð
Kristján Jón Guðmundsson, Bolungarvíkurkaupstað
Martha Kristín Pálmadóttir, Ísafjarðarbæ
 
Gylfi Ólafsson, Ísafjarðarbæ verður áfram formaður stjórnarinnar, en þó aðeins til eins árs. Þá tekur Þórkatla Soffía Ólafsdóttir, Vesturbyggð við formennsku næsta árið.
 
Þinggerðin má finna HÉR ásamt upplýsingum um kjör í fastanefndir.