Fara í efni

Umsóknarfrestur - Styrkur úr frumkvöðlasjóði Íslandsbanka

Við viljum vera hreyfiafl til góðra verka í samfélaginu og styðja við sjálfbæra þróun í samfélaginu. Við veitum styrki til verkefna sem styðja við þau fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur valið að leggja sérstaka áherslu á og má sjá hér að neðan. Þannig hvetjum við til sjálfbærrar nýsköpunar. Umsækjendur eru hvattir til að líta sérstaklega til undirmarkmiðanna og tilgreina tengingar við þau í umsóknarferlinu ásamt því að kynna sér vel almenn skilyrði sjóðsins. Hægt er að sækja um styrk á bilinu 500.000 - 5.000.000 kr.

Markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar og styðja við bakið á frumkvöðlaverkefnum sem stuðla að ofangreindum heimsmarkmiðum sem bankinn leggur sérstaka áherslu á. Íslandsbanki greiðir 0,1% mótframlag í sjóðinn af innistæðu Vaxtasprota sparnaðarreikningum á ársgrundvelli.

Fyrirspurnir sendist á netfangið: frumkvodlasjodur@islandsbanki.is.

Umsóknarfrestur er frá 20. september til og með 19. október 2025.

Frekari upplýsingar