Menningarvefur opnaður
Í morgun var nýr vefur Menningarráðs Vestfjarða opnaður formlega, hér á slóðinni www.vestfirskmenning.is.Á vefnum eru margvíslegar upplýsingar um menningarlíf á Vestfjörðum og starfsemi Menningarráðsins, fréttir af atburðum og tíðindi úr menningarlífinu, tenglar og upplýsingar um styrki Menningarráðsins ásamt vefformi með umsóknareyðublaði.
04. október 2007