Fara í efni

Vörðum leiðina saman - opnir fjarfundir innviðaráðuneytis

Fréttir

Innviðaráðuneytið býður, í samvinnu við Vestfjarðastofu, íbúum Vestfjarða opins samráðs á fjarfundi 24. október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.

Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.

Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum, sem flestir eru haldnir milli kl. 15:00-17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams.

Hægt er að skrá sig á vef Stjórnarráðsins. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina.