Fara í efni

Vinnustofur Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða

Fréttir

Vinnustofur fyrir þá sem eru að vinna í umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða hafa verið færðar í fjarfund í ljósi aðstæðna. 
Boðið verður upp á tvær vinnustofur í gegnum fjarfundaforritið Zoom.  

Fyrri vinnustofan verður haldin miðvikudaginn 4. nóvember kl 16-18. Smellið hér til að komast á vinnustofuna. Fundarnúmerið er 920 4458 2282
Seinni vinnustofan verður haldin fimmtudaginn 5. nóvember kl 16-18. Smellið hér til að komast á vinnustofuna. Fundarnúmerið er 978 9518 9570

Einnig er hægt að hafa samband við ráðgjafa Vestfjarðastofu og óska eftir einkatíma alveg þar til umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 12. nóvember kl 16:00. Smellið á nafn viðkomandi ráðgjafa til að panta tíma.
Skúli Gautason
Þórkatla Ólafsdóttir
Guðrún Anna Finnbogadóttir
Arna Lára Jónsdóttir