Fara í efni

Vinnustofur um styrkumsóknir í Uppbyggingarsjóð

Fréttir

Nú styttist í að umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð renni út, en hægt er að sækja um styrki til og með 11. maí næstkomandi. Mikilvægt er að undirbúa umsóknargerð vel til að árangur náist. Af þessu tilefni verða nú haldnar vinnusmiðjur um styrkumsóknir í Uppbyggingarsjóð á þremur stöðum á Vestfjörðum - í þróunarsetrunum á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Þar geta menn komið á ákveðnum tíma og sest niður til að vinna í sínum umsóknum og fengið leiðbeiningar og svör við spurningum frá starfsfólki Fjórðungssambands Vestfirðinga og AtVest.

 

Einnig er hægt að leita til starfsmanna Fjórðungssambands og AtVest eftir leiðbeiningum og aðstoð utan þessa tíma, allt þar til umsóknarfrestur rennur út.

 

Vinnusmiðjurnar verða á þessum tímum:  

 

Skor, þróunarsetrið á Patreksfirði:
Miðvikudaginn 6. maí kl. 13-15:30.

 

Þróunarsetrið á Ísafirði

Miðvikudaginn 6. maí kl. 13-15:30.

 

Þróunarsetrið á Hólmavík

Miðvikudaginn 6. maí kl. 13-15:30 &

fimmtudaginn 7. maí kl. 13-15:30.

 

Umsóknarblöð og úthlutunarreglur er að vinna á www.vestfirdir.is/uppbyggingarsjodur og á umsóknarblaðinu er að finna nokkuð ítarlegar leiðbeiningar um útfyllingu einstakra reita.