Fara í efni

Viðtalstímar á Reykhólum

Fréttir

Starfsmenn Vestfjarðastofu verða með fasta viðverutíma á Reykhólum, alla miðvikudaga á skrifstofutíma. Það verða verkefnastjórarnir Skúli Gautason og Sigurður Líndal sem verða á skrifstofu Reykhólahrepps til skiptis.

Þetta verklag hefst miðvikudaginn 29. september. Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, verður einnig á Reykhólum þann dag.

Vonast er til að íbúar Reykhólahrepps grípi þetta tækifæri til að nýta sér þjónustu og krafta Vestfjarðastofu enn betur fegins hendi.