Fara í efni

Vestnorden 2026

Fréttir
Vilborg og Sölvi við fundarborðið Vestnorden 2026 í Nuuk
Vilborg og Sölvi við fundarborðið Vestnorden 2026 í Nuuk

Markaðsstofa Vestfjarða tók þátt í ferðakaupstefnunni Vestnorden 2026 sem haldin var í Nuuk á Grænlandi dagana 21.–25. september. Fyrir hönd Markaðsstofunnar tóku Sölvi Rúnar Guðmundsson og Vilborg Pétursdóttir þátt í sýningunni, auk þess sem fulltrúar Fantastic Fjords og Valkyrie Tours voru á meðal vestfirskra þátttakenda.

Vestnorden er ferðakaupstefna þar sem ferðaþjónustuaðilar frá Grænlandi, Íslandi og Færeyjum hitta ferðaskrifstofur, ferðaheildsala og aðra samstarfsaðila, auk kaupenda frá fjölmörgum erlendum mörkuðum.

Stærsti hluti kaupstefnunnar fer fram í formi fyrir fram bókaðra viðskiptafunda. Tveir dagar eru þéttskipaðir fundum þar sem seljendur og kaupendur kynna vörur og áfangastaði og ræða mögulegt samstarf.

 Fulltrúar Markaðsstofu Vestfjarða tóku samanlagt þátt í yfir 30 fundum á meðan á kaupstefnunni stóð. Nokkrir fyrirhugaðir fundir féllu þó niður vegna veðurs, þar sem þátttakendur komust ekki til Nuuk frá austurströnd Grænlands.

Fundirnir voru nýttir bæði til að mynda ný tengsl og styrkja sambönd sem þegar hafa verið byggð upp. Áhersla var lögð á að kynna Vestfirði sem áfangastað og tengja ferðaskrifstofur og ferðaheildsala við vestfirsk ferðaþjónustufyrirtæki.

Það er mikilvægt fyrir okkur að mæta á ferðasýningar eins og Vestnorden og hitta fólk augliti til auglitis. Þar gefst bæði tækifæri til að mynda ný sambönd og styrkja tengsl sem við höfum áður komið á. Á tveimur dögum nær maður að eiga samtöl við fjölda aðila sem annars tæki langan tíma að ná til og útskýra betur hvað Vestfirðir hafa upp á að bjóða.

Meira en viðskiptafundir

Vestnorden snýst þó ekki eingöngu um viðskiptafundi. Kaupstefnan gefur þátttakendum einnig tækifæri til að kynnast þróun ferðaþjónustu á Grænlandi, Íslandi og í Færeyjum og miðla reynslu og hugmyndum milli landanna.

Þegar kaupstefnan er haldin á Grænlandi skapast jafnframt tækifæri til að kynnast landinu og grænlenskri menningu betur. Fyrir Markaðsstofu Vestfjarða er slíkt áhugavert enda eiga Vestfirðir og Grænland ýmislegt sameiginlegt þegar kemur að dreifðum byggðum, náttúru, menningu og uppbyggingu ferðaþjónustu.

Í tengslum við Vestnorden tók Markaðsstofa Vestfjarða meðal annars þátt í vinnustofu um þróun menningartengdrar ferðaþjónustu sem haldin var í Katuaq, menningarhúsi Grænlendinga í miðborg Nuuk.

Slík nálgun fellur vel að þróun ferðaþjónustu á Vestfjörðum, þar sem áhersla er ekki aðeins lögð á náttúruna heldur einnig á fólk, menningu, mat og samfélögin sem mynda áfangastaðinn.

Tengsl og samtöl í Nuuk

Ferðin gaf einnig tækifæri til óformlegri funda og samtala. Fulltrúar Markaðsstofu Vestfjarða litu meðal annars við hjá ræðismanni Íslands í Grænlandi og nýttu dvölina í Nuuk til að hitta bæði íslenska og erlenda aðila úr ferðaþjónustunni.

Eitt af hlutverkum Markaðsstofu Vestfjarða er að kynna svæðið gagnvart mörkuðum og kaupendum og skapa tengingar sem geta nýst ferðaþjónustufyrirtækjum á Vestfjörðum. Ferðakaupstefnur á borð við Vestnorden eru hluti af þeirri vinnu.

Vestnorden kemur til Reykjavíkur 2027

Næsta Vestnorden verður haldið í Reykjavík 5.–6. október 2027.

Markaðsstofa Vestfjarða hvetur fyrirtæki á svæðinu til að skoða þátttöku. Þegar kaupstefnan er haldin á Íslandi verður aðgengi einfaldara fyrir mörg fyrirtæki og þar gefst tækifæri til að hitta á skömmum tíma fjölda erlendra kaupenda sem eru komnir til landsins til að leita að vörum, upplifunum og samstarfsaðilum.

Fyrir fyrirtæki getur þátttaka á Vestnorden verið leið til að kynna sína starfsemi beint, byggja upp sambönd og koma vörum sínum og þjónustu á framfæri við aðila sem selja ferðir til Íslands.

Reynslan frá Nuuk sýnir vel að stuttur fundur á kaupstefnu getur verið upphafið að áframhaldandi samstarfi og viðskiptum. Markaðsstofa Vestfjarða mun því halda áfram að fylgja eftir þeim tengslum sem mynduðust og styrktust í Nuuk, um leið og horft er til Vestnorden í Reykjavík að ári.