Fara í efni

Vestfjarðastofa leitar að starfsmanni á Patreksfirði

Fréttir

Vestfjarðastofa leitar að verkefnastjóra með starfsstöð á Patreksfirði. Verkefnastjóri sinnir verkefnum sem varða atvinnulíf og byggðaþróun á öllum Vestfjörðum. Megináherslur í starfi verkefnastjóra eru á sviði fiskeldis og sjávarútvegs. 

Vestfjarðastofa er að leita að verkefnastjóra sem hefur góða samskiptahæfni, frumkvæði og aðlögunarhæfni í breytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að verkefnastjóri geti unnið bæði sjálfstætt og sem hluti af teymum. 

Menntun og hæfni

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Góð þekking á sjávarútvegi og/eða fiskeldi skilyrði
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
  • Reynsla af ráðgjöf eða atvinnuþróun kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu kostur
  • Hæfni til að móta nýjar leiðir og leita að stöðugum umbótum kostur

Æskilegt er að verkefnastjóri geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknafrestur er til og með 17. maí 2019.

 Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM. 

Áhugasamir sendi kynningarbréf og ferilskrá á netfangið sirry@vestfirdir.is
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ó. Kristjánsdóttir í síma 861 4913 eða ofangreindu netfangi.