Samfélagsleg nýsköpun, samfélagsfrumkvöðlar og samfélagslega drifin fyrirtæki hafa verið verkefnastjórum MERSE hjá Vestfjarðastofu ofarlega í huga síðustu misseri, en líkt og fram hefur komið hjá okkur tekur Vestfjarðastofa þátt í Evrópuverkefni sem snýr að samfélagslegri nýsköpun í dreifðum byggðum.
Viðfangsefni þátttökulanda verkefnisins hafa verið mismunandi, meðal annars vegna þess að staða samfélagslegrar nýsköpunar í löndunum er talsvert ólík. Hér á Íslandi erum við til að mynda mikið að vinna í grunninum sem snýr að því að kynna þessi hugtök fyrir almenningi og að skoða hvernig við sem atvinnuráðgjafar getum sem best stutt við samfélagsfrumkvöðla.
Liður í þeirri vinnu var hringferð um Vestfirði í síðustu viku þar sem haldnir voru opnir fundir á Hólmavík, Patreksfirði og Ísafirði þar sem vestfirskir samfélagsfrumkvöðlar voru sérstaklega hvattir til að mæta. Steinunn Ása og Annska verkefnisstjórar MERSE sögðu á fundunum frá MERSE og fóru aðeins yfir skilgreiningar á áðurnefndum hugtökum. Í aðalhlutverki á fundunum voru þó starfandi samfélagsfrumkvöðlar, þær Anna Björg Þórarinsdóttir hjá Galdrasýningunni á Hólmavík, Birta Ósmann Þórhallsdóttir hjá bókaútgáfunni Skriðu á Patreksfirði og Heiðrún Björk Jóhannsdóttir hjá Netagerðinni – skapandi vinnustofum á Ísafirði.
Jafningjafræðsla samfélagsfrumkvöðla
Eitt af fyrstu verkefnunum í MERSE var að skilgreina fyrirmyndarverkefni á nærsvæði þátttakendanna og í því voru Strandagaldur, Skriða og Netagerðin valin til umfjöllunar hér á Vestfjörðum. Í næsta skrefi var samfélagsfrumkvöðlum boðið að taka þátt í námskeiði hjá SEA (Social enterprise academy) og voru þær stöllur einnig valdar til þátttöku þar. Námið hjá SEA snýr að því að þjálfa samfélagsfrumkvöðla í jafningjafræðslu og er það hugsað til að byggja upp stuðningsnet samfélagsfrumkvöðla á þátttökusvæðunum.
Á fundunum þremur voru því samfélagsfrumkvöðlarnir sjálfir við stjórn og nýttu meðal annars þau tæki sem þeir hafa fengið í gegnum námskeiðið hjá SEA. Fundirnir tókust yfirhöfuð ljómandi vel til og gaman var að heyra hversu mikil gróska er á Vestfjörðum og hversu umhugað íbúum er um að lifa vel á sínum svæðum, en samfélagsleg nýsköpun sprettur iðulega upp af því að íbúar bregðast við að fylla í göt sem hið opinbera og einkaframtakið sjá ekki um að sinna. Á einhverjum fundanna urðu til samstarfstengingar samfélagsfrumkvöðla og hugmyndir spruttu að nýjum verkefnum. Þá má nú aldeilis segja að áfangasigri sé náð.
Sunneva Guðrún Þórðardóttir teiknaði þessa frábæru mynd á fundinum á Hólmavík.