Ungmennaþing Vestfjarða fór fram á Suðureyri dagana 16.–18. september. Þar komu um 40 ungmenni saman af öllum Vestfjörðum til að ræða málefni sem snerta líf þeirra og framtíð, kynnast lýðræðislegum vinnubrögðum og móta tillögur að breytingum. Fræðsla, hópavinna og samvera einkenndu þingið, þar sem almenningssamgöngur urðu skýrt forgangsmál.
Á þinginu fengu ungmennin tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, bera saman reynslu sína og vinna saman að hugmyndum um hvernig bæta megi samfélagið á Vestfjörðum. Dagskráin tengdi fræðslu um lýðræði og áhrif ungs fólks, við vinnustofur þar sem þátttakendur þróuðu eigin tillögur. Ungmennin fóru í átta málefnahópa yfir þingið, það voru: samgöngur og tengingar; menntun og framtíð; íþróttir, tómstundir og félagslíf; menning og samfélag; velferð og heilsa; umhverfi og sjálfbærni; húsnæði, skipulag og byggðaþróun; og lýðræði og áhrif ungs fólks.
Í vinnustofunum greindu ungmennin tækifæri og áskoranir í sínum málaflokki, þá hvað virkar vel í þeirra nærumhverfi, hvar tækifæri liggja til úrbóta og hvaða breytingar myndu skipta þau mestu máli. Þau unnu síðan að lausnum og mótuðu tillögur sem þau kynntu og ræddu á þinginu.
Þannig fengu þátttakendur að kynnast ferlinu frá fyrstu hugmynd að rökstuddri tillögu. Vinnan kallaði á að þau hlustuðu á ólík sjónarmið, skýrðu eigin áherslur og kæmust að sameiginlegri niðurstöðu um þau mál sem þau vildu setja í forgang. Fræðsla og samtöl við fólk sem tekur þátt í lýðræðisstarfi voru einnig hluti af dagskránni. Þar gafst ungmennunum færi á að spyrja spurninga og ræða hvernig þau geta haft áhrif á ákvarðanir og þróun samfélagsins.

Þó hóparnir fengjust við ólík viðfangsefni kom mikilvægi almenningssamgangna ítrekað fram. Ungmennin lögðu áherslu á að samgöngur væru forsenda þess að þau gætu sótt menningarviðburði, stundað íþróttir, tekið þátt í félagslífi og nýtt þjónustu sem styður við heilsu og líðan. Þau bentu jafnframt á umhverfislegan ávinning aukinna almenningssamgangna.
Á lokadegi þingsins kusu ungmennin í formlegum kosningum um þrjár mikilvægustu tillögurnar en niðurstaðan var afgerandi og settu ungmennin almenningssamgöngur í efsta forgang. Í umræðum þeirra kom skýrt fram að framboð á viðburðum og starfsemi þurfi að haldast í hendur við möguleika ungmenna á að komast á milli staða. Ungmennin kölluðu eftir auknu samstarfi sveitarfélaga um félagslíf þeirra og fleiri sameiginlegum viðburðum. Þau vilja fá fleiri tækifæri til að hittast og kynnast þvert á byggðarlög og svæði. Ungmennin lögðu ríka áhersla á að efla íþróttastarf á Vestfjörðum. Þátttakendur lýstu ólíkri stöðu eftir búsetu og kölluðu bæði eftir fjölbreyttara framboði og betra aðgengi. Ungmenni úr Reykhólahreppi lýstu því að ekkert íþróttastarf væri í boði fyrir þau í heimabyggð.

Umræðurnar undirstrikuðu mikilvægi þess að hlusta á reynslu ungmenna af ólíkum stöðum þegar þjónusta og starf fyrir þau eru skipulögð. Einnig kaus þingið um menningarfulltrúa ungmennaráðs og var Iðunn Ósk Bragadóttir kosin aðalfulltrúi og Árdís Níní Liljudóttir kosin varafulltrúi.
Samhliða vinnustofum og fræðslu gafst tími til samveru. Þingið var því einnig vettvangur fyrir ungmennin til að kynnast, deila reynslu og efla tengsl sín á milli. Á kvöldvökunni á laugardeginum kom Ágúst Brynjarson tónlistarmaður en hann söng allt kvöldið með ungmennunum.
Ungmennaþing Vestfjarða sýndi hversu mikilvægt er að skapa ungu fólki rými til að ræða eigin málefni og taka þátt í að móta framtíð svæðisins. Tillögur þess og áherslur eru mikilvægt innlegg í áframhaldandi umræðu um samfélög á Vestfjörðum og tækifæri ungs fólks til að búa þar og dafna.