Fara í efni

Vestfirsk börn tóku þátt í Sólmyrkvaleikunum

Fréttir Barnamenningarhátíðin Púkinn

Þessa síðustu viku febrúarmánaðar hefur heldur betur verið fjör hjá vestfirskum nemendum á miðstigi er stærsta verkefni barnamenningarhátíðarinnar Púkans til þessa, Sólmyrkvaleikarnir, fóru fram. Verkefnið er unnið í samstarfi við hönnunarhópinn Þykjó, tónlistarfólkið Sigga og Ingibjörgu og Stjörnu-Sævar og er það styrkt af Barnamenningarsjóði.

Sólmyrkvaleikarnir fóru þannig fram að krakkarnir byrjuðu á fyrirlestri hjá Sævari Helga Bragasyni sem er betur þekktur í þeirra hópi sem Stjörnu-Sævar, sem sagði þeim á sinn innblásna hátt frá almyrkva á sólu sem Vestfirðingar verða í kjöraðstæðum til að upplifa þann 12. ágúst næstkomandi – í eina sinn á lífsleiðinni fyrir þau sem fædd eru eftir 1954.

Að fyrirlestri loknum tóku við vinnustofur þar sem allir fengu að taka þátt í skuggaleikhússmiðju með Aude og Emblu frá Þykjó, vísindasmiðju með Sævari og Ninnu frá Þykjó og tónlistarsmiðju með Sigga og Ingibjörgu. Með í för var kvikmyndagerðarmaðurinn Janus Bragi sem myndaði það sem fram fór til að skapa úr því stuttmynd sem sýnd verður þegar Púkinn fer fram dagana 27. apríl-8. maí. Þar mun líka hljóma lag sem Siggi og Ingibjörg hafa sett saman upp úr tónlistarsmiðjunum og útsett.


Teymið á bak við Sólmyrkvaleikana: Ingibjörg Fríða, Siggi, Sævar Helgi, Janus Bragi, Nina, Embla og Aude 

Á Sólmyrkvaleikunum í félagheimilinu á Hólmavík komu krakkar alls staðar af Ströndum og úr Reykólahreppi, á Ísafjörð komu allir skólarnir á norðanverðum Vestfjörðum í Edinborgarhúsið og á Patreksfjörð voru það allir skólarnir í Vesturbyggð sem sameinuðust í félagsheimili Patreksfjarðar.

Því miður lék veðrið okkur grátt þannig að ákveðið var að færa Sólmyrkvaleikana á Patreksfirði um einn dag sem leiddi af sér að fyrirlestur með Stjörnu-Sævari var sendur í gengum fjarfundarbúnað, en almennt var gríðarmikil ánægja hjá börnunum með viðburðinn og erum við sem að hátíðinni stöndum himinsæl með að geta boðið vestfirskum börnum að taka þátt svona spennandi menningarstarfi. Það hefur verið virkilega dýrmætt að fá alla skólana á svæðinu með okkur í lið, því í gegnum skólana geta öll börn verið með.

Ungmennaráð Vestfjarða valdi hafið sem þema Púkans í ár og vildi þau jafnframt sjá samspil lista og vísinda og samstarf eiga sér stað. Í allri vinnu Þykjó í kringum þetta verkefni hefur verið lögð áhersla á að uppfylla óskir ungmennaráðsins.