Fara í efni

Vestfirðir á VestNorden

Fréttir
Sædís og Díana í notalegu kertaljósi
Sædís og Díana í notalegu kertaljósi

Í lok september tók Markaðsstofa Vestfjarða þátt í ferðasýningunni VestNorden, en hún var að þessu sinni haldin í Nuuk í Grænlandi. Ásamt Markaðsstofunni fóru ferðaskrifstofan Fantastic Fjords og sveitahótelið Holt Inn. Greina mátti mikinn áhuga á Vestfjörðum og ljóst að þekking á landssvæðinu hefur aukist undanfarin ár, töluvert var rætt um Vestfjarðaleiðina, ferðamannaleið um Vestfirði og Dali en einnig er ljóst að Lonely Planet viðurkenningin hefur varpað ljósi á Vestfirðina.


Óveður gekk yfir Grænland meðan á sýningunni stóð sem varð til þess að rafmangslaust varð í sýningarhöllinni hluta af degi. En Vestfirðingar voru við öllu búnir og höfðu auðvita ferðast með nokkur kerti frá Kertahúsinu og gátu því fljótt hafið fundi aftur við notalegt kertaljósið.