Púkinn, barnamenningarhátíð á Vestfjörðum, verður haldin dagana 27. apríl – 8. maí 2026. Þema hátíðarinnar var valið af Ungmennaráði Vestfjarða og er það hafið, en einnig var farið fram á að tengja saman vísindi og listir.
Hægt er að sækja um styrki til að vera með viðburði tengda hátíðinni. Markmið með sjóðnum er að tryggja vestfirskum börnum vandaða menningarviðburði til að njóta eða taka þátt í. Ef viðburðirnir fara ekki fram á meðan á hátíðinni stendur er mælst til að hægt verði að njóta afraksturs þeirra innan dagsetninga hennar.
Styrkjum er úthlutað til einstakra viðburða, eða raða viðburða. Ekki eru veittir styrkir til rekstrar‐, stofnkostnaðar‐ eða endurbóta eigna eða fyrirtækja. Úthlutað er til lögráða einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, stofnana eða fyrirtækja sem koma að menningarviðburðum fyrir börn á Vestfjörðum.
Skilyrði fyrir styrkveitingu
Viðburðir skulu tengjast barnamenningarhátíðinni Púkanum
Viðburðir skulu ætlaðir börnum á grunnskólaaldri
Annað sem hafa ber í huga
Viðburðir á Púkanum eru að kostnaðarlausu nema annað sé tekið fram
Viðburðir sem haldnir eru á öllum þremur svæðum Vestfjarða njóta forgangs
Leitast verður við að tryggja dreifingu viðburða um alla Vestfirði og getur mat úthlutunarnefndar tekið mið af því
Sótt er um í gegnum umsóknarform á heimasíðu Vestfjarðastofu, þar er einnig aðgengilegt matsblað úthlutunarnefndar
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2026 og tilkynnt um úthlutanir um miðjan mars.