Fara í efni

Verkefnastjóri í verkefnið Öll vötn til Dýrafjarðar

Fréttir

Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnastjóra í verkefnið Brothættar byggðir sem fengið hefur nafnið „Öll vötn til Dýrafjarðar“. Verkefnastjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins ásamt verkefnastjórn og starfar hann í umboði hennar að aðgerðum til eflingar byggðar og mannlífs á Þingeyri.

 

Um er að ræða 100% starf sem skiptist í 50% stöðu verkefnastjóra Brothættra byggða og 50% önnur verkefni Vestfjarðastofu. 

 

 Hæfniskröfur:

- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

- Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórnun.

- Þekking á staðháttum á Vestfjörðum.

- Góð almenn rit- og tölvufærni.

- Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg.

- Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.

 

Helstu verkefni:

- Fylgja eftir ákvörðunum verkefnastjórnar.

- Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum í byggðunum.

- Upplýsingamiðlun og skýrslugerð til íbúa og samstarfaðila.

- Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu.

 

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Aðsetur verkefnastjóra verður á Þingeyri. Upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is).

 

Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (sirry@vestfirdir.is)

Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið : sirry@vestfirdir.is merkt: Öll vötn til Dýrafjarðar. Umsóknarfrestur er til 22. maí 2018.