Vegleg úthlutun frá Tækniþróunarsjóði til Vestfjarða
Sú gleðifrétt barst okkur í byrjun júní að styrkur hefði hlotist frá Tækniþróunarsjóði fyrir umsókn sem Vestfjarðastofa vann með Ístækni, Kampa og Háskólanum á Akureyri. Verkefnið sem hlaut styrk heitir „Arctic Astaxanthin: Verðmætasköpun úr rækjuskel og smíði frumgerðar“.
Verkefnið felst í að þróa sérhæft tæki til vinnslu á litarefni rækjuskeljar áður en hún fer til áframhaldandi vinnslu, án þess að skemma aðra eiginleika skeljarinnar, og er þáttur í því sem hefur verið kallað þrepaskipt lífræn fullvinnsla. Styrkupphæðin er 22 milljónir króna til tveggja ára og stefnt er á að verkefnið hefjist í júlí 2026.
Ef vel gengur mun þessi tækni nýtast í fullvinnslu rækjuskeljar um allan heim með íslensku hugviti og tæknibúnaði.