Fara í efni

Úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs Jú víst! Kraftur í Kaldrana

Fréttir

Fimmtudaginn 26. febrúar verður fyrsta úthlutunarathöfn Frumkvæðissjóðs Jú víst! Kraftur í Kaldrana haldin. Athöfnin fer fram í Verslunarfélagi Drangsness og hefst klukkan 16:00. Boðið verður upp á kaffi og með því fyrir gesti og gangandi. Íbúar Kaldrananeshrepps eru hvattir til að fjölmenna og fagna með þeim sem hlotið hafa styrk að þessu sinni.

Alls bárust 28 umsóknir í sjóðinn, þar sem sótt var um rúmlega 47 milljónir króna, og nemur heildarkostnaður verkefnanna alls um 130 milljónum króna. Verkefnisstjórn þakkar öllum umsækjendum fyrir sýndan áhuga á verkefninu. Að þessu sinni hljóta 19 verkefni styrk, samtals 11,5 milljónir króna voru til úthlutunar, og er styrkþegum óskað innilega til hamingju með áfangann!

Skoða á viðburðardagatali