Fara í efni

Úthlutunarathöfn FFF 2026

Fréttir

Úthlutun úr Frumkvæðissjóði í Bjarkalundi

Frumkvæðissjóður Fjársjóðs fjalla og fjarða efnir til úthlutunarathafnar miðvikudaginn 10. júní næstkomandi kl. 17:00. Athöfnin fer fram í  Bjarkalundi.

Á athöfninni verður opinberað hvaða verkefni hljóta styrki úr sjóðnum að þessu sinni, en markmið sjóðsins er að styðja við nýsköpun, menningu og atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast þeim fjölbreyttu og framsæknu hugmyndum sem eru í pípunum á svæðinu.

Dagskrá og léttar veitingar

Að lokinni formlegri afhendingu styrkja verður blásið til fagnaðar þar sem boðið verður upp á kaffi og með því. Gestum gefst þar gott tækifæri til að spjalla saman, fagna með styrkþegum og skiptast á hugmyndum.

Hvað: Úthlutun Frumkvæðissjóðs Fjársjóðs fjalla og fjarða
Hvenær: Miðvikudaginn 10. júní kl. 17:00
Hvar: Bjarkalundi

Stjórn sjóðsins hvetur íbúa, velunnara og alla áhugamenn um framfarir á svæðinu til að mæta og sýna styrkþegum stuðning.

Skoða á viðburðardagatali