Fara í efni

Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða 2018

Fréttir

Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða fyrir árið 2018

 

Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða hefur nú lokið við að fara yfir umsóknir um styrki vegna ársins 2018. Samtals eru um 65 milljónir til úthlutunar til margvíslegra verkefna og uppbyggingar á Vestfjörðum, en hluta þeirrar upphæðar hefur þegar verið ráðstafað í styrkjum sem eru ákveðnir til tveggja eða þriggja ára.

Mörg verkefni sem fá framlög eru sérstaklega áhugaverð og umsóknir voru fjölbreyttar. Fjórðungssamband Vestfirðinga óskar styrkhöfum til hamingju með framlögin og umsækjendum öllum góðs gengis við vinnu að sínum verkefnum. Fjármagn Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða er hluti af samningi Fjórðungssambands Vestfirðinga við stjórnvöld um framkvæmd Sóknaráætlunar Vestfjarða 2015-2019.

 

Alls bárust 99 gildar umsóknir og var ákveðið að veita 60 styrkvilyrði. Alls var úthlutað 50,8 milljónum króna. Framlögin skiptast í 56 verkefnastyrki og 4 stofn- og rekstrarstyrki til menningarstofnana. Styrktarupphæðir eru á bilinu 100 þúsund til 4 milljóna, en meðalupphæð framlaga er um 847.000 kr.

Framlög þessarar úthlutunar skiptast þannig að kr. 10.500.000 kr. eru stofn- og rekstarstyrkir til menningarstofnana, 32.700.000 kr. er ráðstafað í 56 verkefnastyrki, þar af 15.000.000 kr. til 16 atvinnu- og nýsköpunarverkefna, en 25.300.000 kr. til 40 menningarverkefna.

 

Hér er listi yfir úthlutanir sjóðsins að þessu sinni:

 

Stofn og rekstrarstyrkir:
4.000.000 kr.
Rekstur Edinborgarhússins, Edinborgarhúsið ehf (til tveggja ára)

 

3.500.000 kr.
Galdrasýning á Ströndum, Strandagaldur ses

 

1.500.000 kr.
Kómedíuleikhúsið, Kómedíuleikhúsið,áhugamannfélag
Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum ehf

 

Verkefnisstyrkir:
2.500.000 kr.
Aldrei fór ég suður, Kristján Freyr Halldórsson

 

2.000.000 kr.
Hrognkelsi – Lífræna lúsaætan (LÚSINFER), Albert K. Dagbjartarson Imsland
Act alone leiklistarhátíð 2018 Act alone, félagasamtök

 

1.500.000 kr.
Menningarviðburðir í Edinborgarhúsinu, Menningarmiðstöðin Edinborg
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda, Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg (til tveggja ára)

 

1.300.000 kr.
Fullvinnsla á eldislaxi, Fiskvinnslan Íslandssaga hf
Náttúrubarnaskólinn - nýsköpun 2018, Sauðfjársetur á Ströndum ses
Dropi - þróun nýrra afurða, True Westfjords ehf
Menningardagskrá Hússins 2018, Sköpunarhúsið 72 ehf
Hafrún, Fiskvinnsla Flateyrar ehf

 

1.200.000 kr.
Sea minerals cosmetics-rannsókn og þróun, Valdimar Smári Gunnarsson

 

1.000.000 kr.
Hrafnseyri frá landnámi til fullveldis, Náttúrustofa Vestfjarða
Nýting á krækling af fiskeldiskvíum, Magnús Þór Bjarnason
Dokkan brugghús (handverksbrugghús), Dokkan brugghús ehf
TVCA: Thingeyri Value Creation Autonomy, Simbahöllin ehf
Stapar Ljóðlistaverk, Mynda og sögusafnið,félag áhugafólks um menningu og sögu

 

800.000 kr.
Startup Westfjords: Nýsköpunarhraðall, Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri ses
Heimildamynd um Samúel í Selárdal, Félag um listasafn Samúels

 

750.000 kr.
Margmiðlunarborð uppfært, Valdimar Smári Gunnarsson

 

600.000 kr.
Ísafjarðarappið, Haukur Sigurðsson
Víkingaviðburðir og námskeið Gíslastöðum, Marsibil G Kristjánsdóttir
Framleiðsla á rækjumjöli til manneldis, Kampi ehf
Blús milli fjalls og fjöru, Blús milli fjalls og fjöru, félagasamtök
Ég var aldrei barn, seinni hluti, Byggðasafn Vestfjarða
ArtsIceland og Gallerí Úthverfa, Kol og salt ehf
Gamanmyndahátíð Flateyrar 2018, Eyþór Jóvinsson

 

400.000 kr.
Strandir 1918, Sauðfjársetur á Ströndum ses
Tungumálatöfrar, Menningarmiðstöðin Edinborg
Strandir í verki: Story of Strandir, Esther Ösp Valdimarsdóttir
Einars leikur Guðfinnssonar, Kómedíuleikhúsið, áhugamannfélag
Sjónarhorn: Menningaarfur í myndum, Jón Jónsson
Harðfiskur - úr firði á filmu, Breiðadalsfélagið ehf
Tálknaféð / Feral Attraction, Minjasafn Egils Ólafssonar
Sögusýning Súðavíkur, Elín B. Guðbjargard Gylfadóttir
Krummaskuð, Linda Dröfn Gunnarsdóttir
Tónverk fyrir Hrafnseyri á aldarafmælinu, Hrafnseyrarnefnd
Náttúrugripasafnið á nýjum tug, Náttúrugripasafn Bolungarvíkur
Hljóðfærasafn Jóns á Þingeyri, Jón Sigurðsson
Gæða og innviðaþróun í Ósvör, Sjóminjasafnið Ósvör
Sýningaruppsetning á þangi og þara, Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum ehf
Ronja ræningjadóttir, Íþróttafélagið Höfrungur
Gilsfjörður Arts, Bergsveinn G Reynisson
Tónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar, Tónlistarfélag Ísafjarðar
Námskeiðaröð í Hveravík á Ströndum, Rúna ehf
Málþing um fornmenningu Stranda, Bergsveinn Birgisson
Staðir, Eva Ísleifsdóttir
Leikrit í fullri lengd, Ingibjörg Emilsdóttir
SVS strandveiðistangir, Tækniþjónusta bifreiða ehf
Tímataka, Birgir Þór Halldórsson
„The Weird Girls Project“ fer vestur, Cathy Louise Lapka
Viðburðir norðan Djúps, Sögumiðlun ehf
25 ára afmæli LRÓ, Listaskóli Rögnvaldar Ólafsssonar
Vestfirðir milli vita, Finnbogi Hermannsson
Babelsturninn, Gunnar Smári Jóhannesson

 

250.000 kr.
The Factory, Emilie Moerkeberg Dalum

 

100.000 kr.
Listasmiðja í Birkimel, Nanna Sjöfn Pétursdóttir