Fara í efni

Úthlutun úr Uppbyggingarsjóð Vestfjarða fyrir árið 2027

Fréttir Uppbyggingasjóður Vestfjarða Sóknaráætlun Vestfjarða

Í gær var úthlutað úr Uppbyggingarsjóð Vestfjarða fyrir verkefni sem koma til framkvæmda á árinu 2027. Umsóknir voru 131 og hlutu 59 umsóknir styrk að þessu sinni. Úthlutað var 61.850.000 kr. en af þeirri upphæð hafði 13.000.000 kr. þegar verið ráðstafað í fjölárastyrki. Til ráðstöfunar voru því 48.850.000 kr.

Úthlutunarhófið var haldið í Edinborgarhúsinu í tengslum við ráðstefnuna Menning og listir á Vestfjörðum og Gullkistuna. Anna Sigríður Ólafsdóttir, Magnea Garðarsdóttir og Skúli Gautason stýrðu athöfninni, sem einnig var send út í streymi. Ávarp var frá Sigríði Ó Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra Vestfjarðastofu og Ásgerði Þorleifsdóttur, formanni úthlutunarnefndar. Jón Jónsson fyrsti menningarfulltrúi okkar Vestfirðinga sagði frá Jólafólum og athöfnin endaði á tónlistaratriði frá stelpusveit frá Tónlistarskóla Ísafjarða sem samanstendur af Guðrúnu Maríu Johansson, Nínu Baldursdóttur og Sunnu Adelíu Stefánsdóttur.

Eftir athöfnina færði Logi Einarsson ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskóla styrkþegum viðurkenningu vegna styrksins og boðið var upp á ljósmyndatöku.

Skúli Gautason menningarfulltrúi og starfsmaður sjóðsins var kvaddur en hann er að láta af störfum vegna aldurs. Uppbyggingarsjóður Vestfjarða þakkar honum kærlega fyrir göfugt starf í þágu sjóðsins síðustu 10 ár.

Í styrkjaflokki stofn og rekstrar hlutu eftirfarandi styrk

Félag um Snjáfjallasetur

500,000

Baskasetur Íslands

500,000

Félag um safn Gísla á Uppsölum

1,000,000

Kol og salt ehf.

1,000,000

Félag um listasafn Samúels

1,000,000

samtals 

4,000,000

 

Í styrktarflokku atvinnu og nýsköpunar hlutu eftirfarandi styrk

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Frá heimabyggð til heimsbyggðar vefverslun ísafold

250,000

Wakeboarding Iceland ehf.

Quest West – Markaðssetning vetrarferða

250,000

The Fjord Hub ehf.

Bikepacking Iceland — Digital Platform Development

400,000

Fjall og fjara ehf.

Westfjords Winter

500,000

Stephan Philipp Kalt

Permavital ehf - Tempeh

500,000

Íris Ösp Heiðrúnardóttir

Bollafaktorían: Sundlaugaserían

800,000

Félag áhugamanna um stofnun skrímslaseturs

Skrímslakort Íslands. Gagnvirk upplifun

900,000

Kristinn Hilmar Marinósson

Gönguleiðakerfið Bifröst

1,000,000

Skúrin samfélagsmiðstöð ehf.

Fjarvinnuþorpið Flateyri

1,000,000

French Touch Cafe ehf.

Arctic Culinary Lab – French Touch Innovation

1,000,000

66N Hemp ehf.

High Latitude Hemp: Local Varieties and Products

1,000,000

Verslunarfélag Drangsness ehf.

Drangsnes Aurora Soak / Baðaðu þig í norðurljósum

1,400,000

Hjartarót ehf.

Vottuð þurrkaðstaða fyrir lyfjagrös

1,500,000

NORA Seafood ehf.

Nordic Uni Paste, Unnið úr Ígulkerjum

1,500,000

IORDEN ehf.

IORDEN

2,000,000

Sjótækni ehf.

Lúsalausn

2,000,000

Eldblóm ehf.

Vestfirska Rabarbarafélagið – gleymdu garðarnir

2,000,000

  samtals 

18,000,000

 

Í styrkjaflokki menningar hlutu eftirfarandi

Nadja Sophie Teresa Widell

Franska kvikmyndahátíðin á Ísafirði 2027

150,000

Tinna Ottesen

Beðið- Vinnustofa og skólasamstarf á Þingeyri

250,000

Íþróttafélagið Höfrungur

Þrettándinn á Þingeyri

250,000

Greta Lietuvninkaité

Ritstúdíó Write it Out""

250,000

Stephan Philipp Kalt

Matar og menningardagur Kaldrananeshrepps

250,000

Diego Ragnar Angemi

Spólað til baka: 2. sýningaröð

250,000

Spilafélag Vestfjarða

Nýliðastarf og spilaviðburðir á Ísafirði 2027

250,000

Arnkatla - lista- og menningarfélag

Vegglistaverk frystihússins

400,000

Andri Pétur Þrastarson

Af fjöllum - vínyll og útgáfutónleikar

400,000

Brendan Michael Kirby

Grjótglímuhátíð Ísafjarðar

400,000

Elín Sveinsdóttir

Útileikhús, námskeið fyrir börn og unglinga.

400,000

Tinna Ottesen

Gönguleiðir á húsgafl

400,000

Fryderic Chopin Tónlistarfélagið á Íslandi

7. F.Chopin Tónlistarhátíðin á Ísafirði

400,000

Kol og salt ehf.

Lendingarstaður fyrir geimverur

400,000

Jóna G Kolbrúnardóttir

Ævintýri á aðventunni

500,000

Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir

Stillansar - leikrit

500,000

Arnkatla - lista- og menningarfélag

Hörmungadagar

500,000

Félag Vestfirskra listamanna

List á Vestfjörðum - tímarit

500,000

Leikfélag Hólmavíkur

Leikrit í fullri lengd og námskeið í sviðsframkomu

500,000

Minjasafn Egils Ólafssonar

Sumarsýning og viðburðardagskrá

500,000

Leikfélag Flateyrar

Leiksýning í fullri lengd

500,000

Félag um listasafn Samúels

Viðburðir á Listasafni Samúels og heimildir á vef

500,000

Kol og salt ehf.

Úthverfa sýningardagskrá 2027

600,000

Leiklistarhópur Halldóru ehf.

Leiklistarnámskeið og leiksýningar fyrir börn

700,000

Bláfjöður brúðuleikhús

Herra Byrjandi

800,000

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda, félagasamtök

Bíónefnd Lions

800,000

Kómedíuleikhúsið,áhugamannfélag

Kanarnir koma

1,000,000

Litli leikklúbburinn

Uppsetning á leikverki 2027

1,000,000

Karíba ehf.

Bókmenntahátíð Flateyrar 2027

1,000,000

Sauðfjársetur á Ströndum ses

Náttúrubarnahátíð á Ströndum 2027

1,000,000

Blús milli fjalls og fjöru, félagasamtök

Blús milli fjalls og fjöru

1,200,000

Strandagaldur ses

Galdrafár á Ströndum 2027

1,200,000

Act alone, félagasamtök

Act alone 2027

1,500,000

Norðurfjara ehf.

Öldurót menningar - Viðburðir í Norðurfjöru

1,500,000

The Pigeon International Film Festival, félagasamtök

The Pigeon International Film Festival

1,800,000

Hótel Djúpavík ehf.

The Factory Art Exhibition 2027

1,800,000

Edinborgarhúsið ehf

Menningardagskrá í Edinborgarhúsinu

2,500,000

  samtals 

26,850,000

 

Við óskum styrkþegum innilega til hamingju og hlökkum til að sjá þessi spennandi verkefni verða að veruleika.