Fara í efni

Úthlutun styrkja til nýsköpunar- og þróunarverkefna á Flateyri

Fréttir

Verkefnastjórn Þróunarverkefnasjóðs Flateyrar hefur úthlutað styrkjum til 15 verkefna sem sótt var um í Þróunarverkefnastjóð til nýsköpunar- og þróunarverkefna á Flateyri. Auglýst var eftir umsóknum 26. ágúst s.l. og rann umsóknarfrestur út 30. september s.l..

Til úthlutunar voru 9 milljónir. Alls bárust 21 umsókn. Heildarumfang verkefna er umsóknir lúta að er um 41,4 milljónir en sótt var um styrki að upphæð um rúmlega 19,4 milljónir. Úthlutað var styrkjum til 15 verkefna tengdum atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og samfélagsþróun.

Í rökstuðningi verkefnastjórnar kemur fram að flestar umsóknir hafi fallið vel að markmiðum verkefnsins en eins og gefur að skilja hafi ekki verið til fjármagn til að úthluta til allra verkefnanna í þessari umferð. Reynt var að velja sem fjölbreyttust verkefni og m.a. var stuðst við stigagjöf eftir mat á tilteknum þáttum í takt við markmið og áherslur verkefnisins.

Allt eru þetta verkefni sem verkefnastjórn telur líkleg til árangurs og að þau muni hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf og samfélagið á Flateyri.