Fara í efni

Úthlutun Orkusjóðs 2022

Fréttir

Úthlutun Orkusjóðs 2022

Úthlutað hefur verið úr Orkusjóð. Hlutverk Orkusjóðs er að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkuauðlinda landsins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka nýtingu á innlendum endurnýjanlegum orkugjöfum.

Fimm áherslur voru fyrir úthlutun að þessu sinni; bætt orkunýting, minnkun olíunotkunar í iðnaði, raf- og lífeldsneyti og metan, hleðslustöðvar fyrir samgöngur og orkuskipti í haftengdri starfsemi. Alls var úthlutað fyrir 871,7 milljónir í 137 verkefni.

21 verkefni frá Vestfjörðum fengu styrk að samtals 151.186.000 kr.

Við á Vestfjarðastofu erum afar ánægð með hlut Vestfjarða í þessari úthlutun þar sem ríflega 17% af úthlutuðum fjármunum komu í hlut verkefna á Vestfjörðum. Þar af tæpar 100 milljónir sem veittar voru til verkefna á sviði orkuskipta í haftengdri starfsemi.

Hæstu styrkir komu í hlut Ísafjarðarhafnar og Bolungarvíkurhafna sem fengu 20 milljónir hvor annars vegar fyrir hleðslutækja fyrir tvíorku dráttarbát á Ísafirði og landtengingu fyrir brunnbát í Bolungarvík. Fiskeldisfyrirtækin Arctic Fish og Arnarlax fá stuðning til landtenginga, rafknúins þjónustubátar og tvinnkerfis í fóðurprömmum. Ánægjulegt er að sjá að sveitarfélögin hafa sótt um og fengið stuðning fyrir hleðslustöðvum og einnig að Þrymur vélsmiðja fékk stuðning til vetnisvæðingar strandveiða.

Ánægjulegt er að sjá stuðning við rannsóknarboranir í Tungudal og vinnsluholu á Patreksfirði sem eru í samræmi við tillögur starfshóps í orkumálum sem skilað var á vordögum. Einnig er góður stuðningur við orkuskipti í Árneshreppi sem eru hluti af vinnu verkefnsins Áfram Árneshreppur sem við á Vestfjarðastofu höfum aðstoðað við.

Orkuskiptin eru sannarlega á fullri ferð hér á Vestfjörðum og má þakka orkuskiptaverkefninu Bláma sérstaklega vel fyrir vitundarvakningu og stuðning við umsóknagerð hjá nokkrum af þeims em sóttu um.

Umsóknarflokkur / umsækjandi Heiti verkefnis Styrkupphæð, kr.
Bætt orkunýting - Orkubú Vestfjarða ohf. Rannsóknaboranir í Tungudal og vinnsluhola Patreksfirði 13,200,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - 3X Technology ehf. Lagt á Djúpið, í orkuskiptum 1,190,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - Árneshreppur Hleðslustöðvar í Árneshrepp 10,000,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - Finnur Ólafsson Hleðslustöðvar í Bjarnarfirði á Ströndum 520,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - Gunnar Jóhannsson Tjaldstæði í Hveravík við þjóðveg 645, Drangsnesveg 1,050,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - Orkubú Vestfjarða ohf. Hleðslustöðvar á Vestfjörðum 7,236,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - Stefán Rósinkrans Pálsson Hleðslustöð á Farfuglaheimili 200,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - Urðartindur ehf. Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla 520,000
Hleðslustöðvar fyrir samgöngur - Vesturbyggð Hleðslustöðvar í Vesturbyggð 600,000
Minnkun olíunotkunar í iðnaði - Arnarlax ehf. Landtenging á fóðurprömmum 10,000,000
Minnkun olíunotkunar í iðnaði - Arnarlax ehf. Tvinnkerfi (Hybrid system) í fóðurprömmum 10,000,000
Minnkun olíunotkunar í iðnaði - Fremri Gufudalur sf. Fyrsta skref í orku skiptum í landbúnaði 1,980,000
Minnkun olíunotkunar í iðnaði - Heiðar Þór Gunnarsson Rafmagnsdælur í haughús 1,390,000
Minnkun olíunotkunar í iðnaði - Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf Rafmagnskynding fyrir fiskvinnslu HG á Súðavík 2,200,000
Minnkun olíunotkunar í iðnaði - Íslenska kalkþörungafélagið ehf. Orkuskipti við forvinnslu hráefnis fyrir verksmiðju Ískalk 12,600,000
Orkuskipti í haftengdri starfsemi - Arctic Fish ehf. Polarcirk 100% rafknúinn þjónustubátur 14,750,000
Orkuskipti í haftengdri starfsemi - Bolungarvíkurkaupstaður Landtenging fyrir Brunnbát í Bolungarvík 20,000,000
Orkuskipti í haftengdri starfsemi - Flugalda ehf. Styrkir til orkuskipta 2022 8,500,000
Orkuskipti í haftengdri starfsemi - Ísafjarðarhöfn Hleðslutæki fyrir tvíorku (Hybrid) dráttarbát 20,000,000
Orkuskipti í haftengdri starfsemi - Norðureyri ehf. Styrkir til orkuskipta 2022 10,000,000
Orkuskipti í haftengdri starfsemi - Þrymur hf.,vélsmiðja. Vetnisvæðing standveiða 5,250,000
    151,186,000