Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað rúmlega 465 milljónum kr. til 15 verkefna í sjö sveitarfélögum. Alls bárust 30 umsóknir frá sjö sveitarfélögum sem námu rúmlega 1,7 milljarði króna, tæplega fjórfalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar. Umsóknarfrestur var til 10. mars og lauk úthlutun 19. maí. Eftirtalin 15 verkefni hlutu styrk að þessu sinni:
Bolungarvíkurkaupstaður - 43.250.000 kr.
Göngustígar og aðkoma „Sandinum“ við Tjarnarkamb í Bolungarvík - 2.880.000 kr.
Lundahverfi - nýtt íbúðahverfi í Bolungarvík - 40.370.000 kr.
Fjarðabyggð -134.520.000 kr.
Endurbætur á Íslenska stríðsárasafninu - 44.840.000 kr.
Fjarðabyggðarhöllin, laga þak og skipta um ljós - 44.840.000 kr.
Fráveitan á Eskifirði - 44.840.000 kr.
Ísafjarðabær - 76.660.000 kr.
Slökkvistöð Ísafjarðarbæjar - 44.840.000 kr.
Torfnes upphitun aðalvallar - 31.820.000 kr.
Múlaþing - 44.840.000 kr.
- áfangi í stækkun leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi - 44.840.000 kr.
Strandabyggð - 8.690.000 kr.
Vatnsveita í Strandabyggð - húsnæði og geislunarbúnaður - 8.690.000 kr.
Súðavík - 61.270.000 kr
Heitir pottar og aðstaða í Súðavík - framhaldsumsókn - 35.610.000 kr.
Slökkvibifreið - 25.660.000 kr.
Vesturbyggð - 95.840.000 kr.
Bíldudalsskóli bygging - 44.840.000 kr.
Fráveita Bíldudal - 7.760.000 kr.
Fráveita Patreksfirði - 7.110.000 k.r
Skólalóð Patreksskóla - 36.130.000 kr.
Samtals: 465.070.000 kr.
Stjórn sjóðsins metur það svo að verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni falli öll vel að áherslum og séu til þess fallin að styrkja innviði sveitarfélaga og atvinnulíf á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.
Úthlutun ársins 2025 rann að stærstum hluta styrkja í flokkinn annað eða samtals rúmlega 200 milljónir króna en því næst til skóla, ríflega 125 milljónir króna.
Fjárhæð samþykktra umsókna nam samtals um 1.123.114.018 kr. Þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er lægra en sú fjárhæð ákvað stjórn sjóðsins að setja hámark á styrki að fjárhæð 60 milljónir króna. Samþykktar umsóknir voru skertar hlutfallslega samkvæmt fyrirfram ákveðnum matsaðferðum og síðan hlutfallaðar með hliðsjón að ráðstöfunarfé sjóðsins sem nam í ár 465,1 milljón.