Fara í efni

Fjárhagslegur stuðningur til ferðaþjónustufyrirtækja sem eru á stafrænni vegferð

Fréttir

Er þitt fyrirtæk í stafrænni vegferð og þarf fjármagn í næstu skref?

Íslenski ferðaklasinn er hluti af Evrópuverkefninu TOURBIT sem hefur það hlutverk að hraða ferðaþjónustufyrirtækjum í gegnum hið stafræna ferðalag.
Hægt verður að styðja við sjö fyrirtæki á Íslandi að andvirði 9.000 € hvert.

Þessi hluti verkefnisins er unnin með stuðningi Ferðamálastofu og landshlutasamtakanna með samstarfi við áfanastaðastofur/markaðsstofur landshlutanna víða um land.

Hverjir geta sótt um?
Þau fyrirtæki sem geta sótt um stuðning á sinni stafrænu vegferð eru fyrirtæki í þessum flokkum:

  • Hótel og gististaðir - Hotels and similar accommodation (NACE I5510)
  • Gistiheimli og smáhýsi - Holiday and other short-stay accommodation (NACE I5520)
  • Tjaldsvæði - Camping grounds, recreational vehicle parks and trailer parks (NACE I5530)
  • Ferðaskrifstofur, ferðasalar dagsferða og tengdur rekstur - Travel agency, tour operator reservation service and related activities (NACE N79)

Hvaða skilyrði eru fyrir því að umsóknin sé tekin til greina?

  • Fyrirtæki sé lítið eða meðalstórt fyrirtæki á evrópskum mælikvarða (starfsmenn á bilinu 1-250)
  • Velta sé undir 50m €
  • Tilgreina hvaða stafræna úrbótaverkefni fyrirtækið hyggst vinna að
  • Vera hluti af Tourbizz samfélaginu.
  • Fara í gegnum stafrænt hæfni mat / Sjálfsmat – sjá hér.

Hvað má nota stuðninginn í?

  • Ráðagjafakostnað og sérfræðikostnað
  • Auka hæfni og þekkingu innan fyrirtækis með aðkeyptri þjónustu (námskeið, menntun, osfrv)
  • Innleiðingaferli á nýrri tækni
  • Eingöngu er hægt að nota stuðninginn hjá fyrirfram ákveðnum þjónustuaðilum, listi yfir þjónustuaðila verður aðgengilegur hér. www.tourbit.eu - ef þú ert þjónustuaðili getur þú skráð þig hér.


Hér er hægt að nálgast kynningu á ensku um hvaða skilyrði eru fyrir stuðningi til fyrirtækja og hvað þau þarf að gera til að sækja um Mikilvægt er að kynna sér málið vel, hala niður umsókninni hér og senda inn umsókn fyrir 5.apríl!

Skoða á viðburðardagatali