Fara í efni

Umsóknarfrestur til 22. janúar - leiðbeiningar um gerð styrkumsókna

Fréttir

Nú styttist í umsóknarfresti til að skila inn umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða, en hann er til og með föstudeginum 22. janúar 2016. Uppbyggingarsjóður er innan vébanda sóknaráætlunar landshlutans og er í umsjón Fjórðungssambands Vestfirðinga. Uppbyggingarsjóður veitir styrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar- og nýsköpunar, auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarstofnana. Hér má nálgast leiðbeiningar um gerð styrkumsókna til Uppbyggingarsjóðs sem unnar eru af menningarfulltrúa Vestfjarða.

 

Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Hægt er að sækja um styrki til allt að þriggja ára, en vakin athygli á að framkvæmda- og fjárhagsáætlanir þurfa að miðast við þann tíma sem sótt er um styrk til. Skila verður umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er að finna ásamt frekari upplýsingum og úthlutunarrreglum hér á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga – www.vestfirdir.is/Uppbyggingarsjodur.

 

Samþykkt hefur verið að árið 2016 verði litið sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða:

 

a)  Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu og stuðla að stofnun nýrra fyrirtækja sem byggja á nýsköpun, einnig vöru- og gæðaþróun í starfandi fyrirtækjum

b)  Verkefni sem stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og aukinni fagmennsku í menningarstarfi

c)  Verkefni sem fjölga eða styðja við atvinnutækifæri á sviði lista og menningar

d)  Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu

e)  Verkefni sem styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu

f)  Verkefni sem skapa viðskiptatækifæri og verðmæti á sviði skapandi greina

g)  Verkefni sem skapa störf fyrir háskólamenntaðar konur eða stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir ungt fólk á svæðinu

h)  Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni sem auka útflutningstekjur eða eru gjaldeyrisskapandi

i)   Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á sviði líftækni

j)   Verkefni sem byggja á samstarfi fyrirtækja og rannsóknaraðila, þ.m.t. háskólastofnana

 

Hægt er að hafa samband og senda umsóknir rafrænt á netfangið uppbygging@vestfirdir.is. Starfsmenn Fjórðungssambands Vestfirðinga veita ráðgjöf við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð og sama gildir um starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.