Fara í efni

Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð runninn út

Fréttir

Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða er nú runninn út og mikill fjöldi umsókna barst á lokasprettinum. Nú tekur við úrvinnsla umsókna, en það er níu manna Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs sem hefur það verkefni að fara yfir umsóknir og velja þau verkefni sem styrkt eru. Umsóknir eru m.a. metnar út frá samþykktum úthlutunarreglum hverju sinni, áherslum sjóðsins, markmiðum og áherslum sem fram koma í Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 og samningi milli ríkis og sveitarfélaga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019.

 

Áhersla er lögð á að umsóknir séu metnar með faglegum hætti út frá trúverðugleika og gæðum umsókna og verkefna, afrakstri þeirra og þeim jákvæðu áhrifum sem þau hafa á atvinnuþróun, nýsköpun, mannauð, menningar- og mannlíf í fjórðungnum.

 

Við síðustu úthlutun Uppbyggingarsjóðs tók vinnuferlið frá því að umsóknarfrestur rann út, þangað til svör voru send umsækjendum 7 vikur.