Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Fréttir

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2024. Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Umsóknarfrestur er til kl. 13 þriðjudaginn 19. október. 

 Vestfjarðastofa veitir aðstoð og ráðgjöf við gerð umsókna og eru áhugasöm hvött til að hafa samband á steinunn@vestfirdir.is.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Sjóðnum er ekki heimilt m.a.:

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
  • Veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.

Gæði umsókna

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn, skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið, sem finna má á umsóknarsíðu.Hvar ber að sækja um?

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is en hlekkur á umsókn er á umsóknarsíðu.

Skoða á viðburðardagatali