04. febrúar 2026
Fréttir
Opið er nú fyrir umsóknir um framlög vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum.
Sótt er um vatnsveitustyrk á lögbýli í þjónustugátt Byggðastofnunar. Innskráning krefst rafrænna skilríkja. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar n.k. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.
Eftirfarandi fylgigögn skulu fylgja með umsókninni
- Mat úttektaraðila á þörf býlis fyrir framkvæmd
- Staðfest kostnaðar- og framkvæmdaráætlun
- Teikningar sé um byggingar að ræða
- Umsögn viðkomandi sveitastjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. ofangreindrar reglugerðar séu uppfyllt, þ.e. að hagkvæmara sé að mati sveitastjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004
Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa.
Vakin er athygli: Þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á sl. ári en luku ekki við framkvæmd þurfa að sækja um aftur.