Tónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, lýðveldisdaginn 17 júní. Við Djúpið er kammertónlistarhátíð þar sem ný og gömul tónlist mætast í fjöbreyttri tónleikadasgskrá þegar sól er hæst á lofti – um sumarsólstöður – á Ísafirði ár hvert.
Samhliða tónleikadagskránni fara fram námskeið fyrir tónlistarnemendur með masterclass- og hópkennslusniði í kammartónlistarflutningi auk masterclass-námskeiðum á einstök hljóðfæri. Aðalnámskeið hátíðarinnar er kammernámskeið þar sem nemendum er komið fyrir í kammerhópum.
Í tengslum við hátíðina er boðið upp á hliðardagskrá fyrir tónleikagesti þar sem afþreyingarmöguleikum svæðisins er ofið saman við einstaka sérviðburði sem hátíðin stendur fyrir.
Dagskráin er stút full hjá þeim í ár en hægt er að nálgast allt um hátíðina og dagskránna hér - https://open.substack.com/pub/viddjupid/p/dagskrainoll2025
Uppbyggingasjóður Vestfjarða styrkir með stolti hátíðina en hátíðin fékk einn af hæstu styrkjum sjóðsins til þriggja ára.