Fara í efni

Það sem þú þarft að vita sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn

Fréttir

Föstudaginn 7. september verður haldið námskeið á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum á Vestfjörðum kjörtímabilið 2018-2022.  Námskeiðið verður haldið í Þróunarsetrinu á Ísafirði Árnagötu 2-4.  Stjórnandi námskeiðsins er Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,  ráðgjafi hjá Ráðrík og fyrrverandi sveitarstjóri.

 

Dagskrá námskeiðsins

10:00     Inngangur 

             Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, ráðgjafi hjá

             Ráðrík og fyrrv. sveitarstjóri.

10:15     Til hvers er ég kjörinn í sveitarstjórn?
              Um hlutverk sveitarstjórnarmanna og möguleika þeirra til að móta það.

              Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir.

10:45      Fjármál sveitarfélaga
              Fjármálastjórn, lagaumhverfi og ársreikningar. Valgerður Ágústsdóttir,

              sérfræðingur á hag- og upplýsingasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga.

11:30      Kaffihlé

11:45      Stjórntæki sveitarstjórnar  
              Stefnumótun, fjárhagsáætlanir, kjarasamningar og mannauðsstefna, árangursstjórnun,

              nýsköpun og upplýsingatæknin.  Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir og Valgerður Ágústsdóttir.

12:45      Hádegisverðarhlé

13:30      Stjórnkerfi sveitarfélaga. Réttindi, skyldur og ábyrgð sveitarstjórnarmanna
              M.a. meginreglur sveitarstjórnarlaga, hlutverk og valdsvið sveitarstjórna,

              verkefni sveitarfélaga, einkaréttur og almannaþjónusta og siðareglur.

              Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir, lögfræðingur á lögfræði- og velferðarsviði
              Sambands íslenskra sveitarfélaga.

14:45      Málsmeðferð
              M.a. sjálfstjórnarréttur sveitarfélaga, stjórnvaldsákvarðanir, eftirlit með

              stjórnsýslu sveitarfélaga og málmeðferðarreglur.   Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir.

 15:45     Kaffihlé

16:00     Samskipti og samstarf
              Meirihluti og minnihluti, starfsmenn sveitarfélaga, milli sveitarfélaga, íbúar og
              frjáls félagasamtök, fjölmiðlar og samfélagsmiðlar.
              Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir.

17:00      Námskeiði lokið

 

Þátttökugjald er kr. 15.900. og er innifalið í því námsgögn, kaffiveitingar og hádegisverður. Skráning er á lina@vestfirdir.is til kl. 16:00, fimmtudaginn 6. sept. nk.