Fara í efni

Svæðisfundir vegna forgangsröðunar verkefna í áfangastaðaáætlun Vestfjarða

Fréttir

Undanfarna mánuði hefur Markaðsstofa Vestfjarða unnið að gerð áfangastaðaáætlun fyrir Vestfirði. Um er að ræða verkefni sem leitt var af Ferðamálastofu og Stjórnstöð ferðamála og síðan samið við Markaðsstofur landshlutanna um að halda um vinnuna á verkefninu.

Á næstu tveimur vikum verða opnir svæðisfundir þar sem markmið fundanna er að fara yfir nokkur atriði sem tengjast þessari vinnu. Þar verða einnig ákveðið hver forgangsverkefni hagsmunaaðila á svæðinu verða.

Það er því mikilvægt að sem flestir mæti, ferðaþjónustuaðilar sem og aðrir áhugasamir, og taki þátt í þróun ábyrgrar ferðaþjónustu á svæðinu.

Fundurnir verða:

  • 20. nóvember 2017 – kl. 11:00-14:00 – Hnyðja Hólmavík
  • 21. nóvember 2017 – kl. 09:00-12:00 – Félagsheimilið Patreksfirði
  • 30. nóvember 2017 – kl.11:00-14:00 – Hótel Ísafjörður

Verkefnið snýst um að skipuleggja og samhæfa þróun og stýringu á öllum þeim þáttum sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á svæðinu. Þetta er unnið með tilliti til þarfa gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis.

Með gerð áfangastaðaáætlunar DMP fyrir Vestfirði verður til heildræn stefna sem tekur til allra þeirra þátta sem atvinnugreinin tengist; umhverfi, íbúum og samfélagi.

Verkefnið á að auðvelda opinbera ákvörðunartöku sem tengjast meðal annars uppbyggingu þjónstu, skipulagsmálum, aðgangsstýringu og markaðsáherslum.

Á Vestfjörðum er unnin ein áfangastaðaáætlun með þremur aðgerðaáætlun skipt niður á eftirfarandi svæði.

  • Norðursvæði – Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur
  • Suðursvæði – Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur
  • Strandir og Reykhólar – Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Reykhólahreppur

Skráning fer fram á www.westfjords.is/dmp

Upplýsingar veitir Magnea Garðarsdóttir - magnea@vestfirdir.is eða í síma 450-3051