Fara í efni

Styrkir til atvinnumála kvenna

Fréttir

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2018 lausa til umsóknar. 
Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.
 
• Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu. • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi. • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar. • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð. • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), til markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, vöruþróunar, hönnunar og efniskostnaðar. • Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.
 
Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 600.000.
 
Umsóknarfrestur er frá 1.febrúar til og með 8.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is   
 
Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar.
 
asdis.gudmundsdottir@vmst.is  
 
 
https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna
 
https://twitter.com/atvinnumalkvenn