Fara í efni

Stofnfundur Sóknarhóps Vestfjarðastofu

Fréttir Verkefni Markaðsstofa Vestfjarða

Innan Vestfjarðastofu hefur nú verið stofnaður Sóknarhópur Vestfjarða en öllum fyrirtækjum á Vestfjörðum er boðið að vera hluti af Sóknarhópnum. Það hefur verið kallað eftir meira samstarfi við Vestfjarðastofu og ekki síður bættu samstarfi milli vestfirskra fyrirtækja. Markmiðið er að skapa samstarfsvettvang fyrirtækja til að vinna að og gæta hagsmuna fyrirtækja á Vestfjörðum. Á þessum vettvangi geta aðilar rætt saman og staðið vörð um sameiginlega hagsmuni allra atvinnurekenda á Vestfjörðum.

Með breytingum á samþykktum Vestfjarðastofu, fá fyrirtækin á Vestfjörðum sterkari aðkomu að stefnumótun, verkefnavali og hagsmunagæslu í gegnum Sóknarhóp en úr honum eru kosnir aðilar inn í stjórn. Atvinnulífið er drifkrafturinn í samfélaginu og hefur verið kallað eftir því að rödd atvinnulífsins sé sterkari.

Breytingarnar eru þær helstar að:

  • Á ársfundi kýs sóknarhópur 5 manna stjórn sem öll er í fulltrúaráði Vestfjarðastofu.
  • 4 efstu úr kjöri eru aðalmenn í stjórn Vestfjarðastofu og 1 er varamaður.
  • Sóknarhópur heldur minnst tvo fundi á ári og einn fundi á ári með stjórn Vestfjarðastofu
  • Sóknarhópur kemur að gerð stefnu og starfsáætlun Vestfjarðastofu
  • Stjórn sóknarhóps getur ályktað um hagsmunamál Vestfjarða
  • Aðilar að sóknarhópi greiða árgjald til Vestfjarðastofu
  • Fyrirtæki og stofnanir sem eru þegar meðal stofnaðila greiða einnig árgjald.
  • Sveitarfélög greiða árstillag til Fjórðungssambands Vestfirðinga sem samkvæmt samningi sem rennur til Vestfjarðastofu

Nánari upplýsingar og skráning eru á síðu Vestfjarðastofu www.vestfirdir.is/soknarhopur Núverandi meðlimir Markaðsstofunnar eru sjálfkrafa hluti af Sóknarhópnum og hafa þannig sama aðgang inn í stjórn Vestfjarðastofu. Þetta er tækifæri til að vinna saman og hafa áhrif á stefnur og strauma í hagsmunagæslu og mynda saman sterka rödd Vestfjarða.

Stofnfundur Sóknarhóps verður haldinn þriðjudaginn 16. maí 2023 kl 16:00 og fer fram á netinu í streymi. Þeir sem eru skráðir í Sóknarhópinn fá senda slóð á fundinn. Á fundinum verða kosnir fulltrúar úr Sóknarhópnum í stjórn Vestfjarðastofu.

Allar nánari upplýsingar veita:

Guðrún Anna Finnbogadóttir gudrunanna@vestfirdir.is

Magnús Þór Bjarnason magnus@vestfirdir.is

Sigurður Líndal sigurdurl@vestfirdir.is

Sölvi Guðmundsson solvi@vestfirdir.is

Þórkatla Ólafsdóttir thorkatla@vestfirdir.is