Fara í efni

Sterkar Strandir - styrkjum úthlutað

Fréttir

Verkefnið Sterkar Strandir hefur úthlutað styrkjum til 15 verkefna sem koma til framkvæmdar á árinu 2023.

Auglýst var eftir styrkumsóknum í byggðaþróunarverkefnið Sterkar Strandir í janúar 2023.

Alls voru að þessu sinni til úthlutunar kr. 10.500.000,- sem er fjárhæð árlegrar úthlutunar.

Frestur til að skila inn umsóknum var til 23. janúar 2023 og bárust alls 24 umsóknir um styrki.

Heildarfjárhæð styrkumsókna nam kr. 43.658.388,- en til ráðstöfunar voru, sem fyrr segir, 10.500.000.

Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Sterkar Strandir en eins og gefur að skilja þá var ekki til fjármagn til að úthluta til allra.

Styrkþegum er öllum óskað til hamingju og verður spennandi að fylgjast með framgangi þessara verkefna.

Styrkþegar, og verkefni þeirra, eru eftirfarandi:

Nafn umsækjanda

Heiti umsóknar

Styrkupphæð

Galdur Brugghús ehf

Ný framleiðslulína

2.300.000

Skíðafélag Strandamanna

Útivistarparadís á Ströndum undir forystu Skíðafélags Strandamanna

1.500.000

Röfn Friðriksdóttir

Fótaaðgerðastofa

1.200.000

Strandagaldur ses

Endurhönnun á Galdrasýningunni

1.000.000

ÓBH útgerð

Sjóstangveiði frá Hólmavík

750.000

Golfklúbbur Hólmavíkur

Uppbygging golfvallar - annar áfangi

500.000

Leikfélag Hólmavíkur

Leiklistanámskeið fyrir börn

450.000

Leikfélag Hólmavíkur

Leikrit í fullri lengd

400.000

Sauðfjársetur á Ströndum ses

Vottað og viðurkennt framleiðslueldhús

400.000

Sauðfjársetur á Ströndum ses

Viðburðadagskrá Sauðfjársetursins 2023

400.000

Christina van Deventer og Bragi Þór Valsson

tónfræði.is - 2. þrep

400.000

Rannsóknasetur HÍ á Ströndum - Þjóðfræðistofa

Búnaður til kvikmyndagerðar

400.000

Fine Foods Íslandica ehf

Dry processing for small food producers

300.000

Christina van Deventer

Myndskreyting barnabókarinnar Jax

250.000

Magnea Dröfn Hlynsdóttir

Heilsurækt í Strandabyggð

250.000