Fara í efni

Sterkar Strandir – styrkjum Frumkvæðissjóðs 2021 úthlutað

Auglýst var eftir umsóknum 10. febrúar 2021. Umsóknarfrestur rann út 10. mars 2021. Alls voru að þessu sinni til úthlutunar kr. 7.270.000 kr.

Alls bárust 31 umsókn um styrki. Heildarfjárhæð styrkumsókna nam kr. 32.299.328 kr. en til ráðstöfunar voru, sem fyrr segir, 7.270.000 kr. Fjöldi góðra umsókna barst en ekki var hægt að úthluta styrkfé til allra verkefna að þessu sinni þar sem heildarupphæð umsókna var mun hærri en það fé sem til úthlutunar var.

Verkefnisstjórn Sterkra Stranda samþykkti þessa styrkveitingu á fundi sínum þann 8. apríl sl. Vanhæfnisreglna var gætt í hvívetna í ferlinu öllu.

Styrkþegar og verkefni þeirra eru eftirfarandi:

Umsækjandi

Verkefni

 Úthlutað

Ágúst Óskar Vilhjálmsson

Krabbaveiðar frá Hólmavík

       1.000.000 kr

Café Riis

Útisvæði við Café Riis

           650.000 kr

Aleksandar Kuzmanic

Hólmavík öl - viðskiptaáætlun

           600.000 kr

Golfklúbbur Hólmavíkur

Uppbygging golfvallar

           600.000 kr

Náttúrubarnaskólinn (Sauðfjársetur á Ströndum)

Náttúrubarnahátíð 2021

           600.000 kr

Skíðafélag Strandamanna

Uppbygging á Skíðasvæði í Selárdal

           600.000 kr

Bjarni Þórisson

Sjóíþróttafélag í Steingrímsfirði

           500.000 kr

Hafdís Sturlaugsdóttir

Húsavíkurbúið - tækjakaup

           500.000 kr

Arnkatla - lista- og menningarfélag

Skúlptúraslóð - annar áfangi

           400.000 kr

Rannsóknasetur HÍ á Ströndum - Þjóðfræðistofa

Úttekt um héraðsskjalasafn

           400.000 kr

Kyrrðarkraftur

Skrifstofuaðstaða fyrir verkefnastjóra

           350.000 kr

Sauðfjársetur á Ströndum

Álagablettir

           300.000 kr

Leikfélag Hólmavíkur

Leikfélag í 40 ár

           270.000 kr

Bador slf.

Laupur - Setur íslenska hrafnsins - fýsileikakönnun

           250.000 kr

Arnkatla - lista- og menningarfélag

Allra veðra von - sirkussýning og -smiðja

           250.000 kr

 

Nánari kynning á verkefnunum fer fram í tengslum við úthlutunarathöfn sem fer fram þegar að staða sóttvarna í landinu gefur færi til slíkra mannfagnaða.